Hljóðleiðsögn um Vatnsdal var gefin út af félaginu Landnám Ingimundar gamla. Leiðsögnin er um klukkutíma löng, þar er sagt frá náttúru, sögu og mannlífi svæðisins. Frásögnin hefst við Þingeyrakirkju og þaðan er hlustandinn leiddur inn dalinn að vestanverðu og aftur út eftir austanverðum dalnum.
Textinn skiptist í átta kafla og milli þeirra er spiluð þjóðleg tónlist sem tengist dalnum.