Textílsetur Íslands miðar að því að efla og/eða þróa íslenska og alþjóðlega þekkingu á textíl og hvetja til rannsókna og mennta á sviði textíllistar og hönnunar. Listamiðstöð Textílsetursins veitir gestum, fræðimönnum í textílfræðum og textíllistamönnum aðstöðu til að vinna að verkefnum á sviði Myndaniðurstaða fyrir textílsetur íslandslistsköpunar, rannsókna og námskeiðahalds.

Textíllistamiðstöðin í Kvennaskólanum er samstarfsverkefni Þekkingarsetursins og Textílsetur Íslands síðan 2012. Listamiðstöðin er ætluð textíllistamönnum frá öllum heiminum og býður upp á gisti- og vinnuaðstöðu í skapandi umhverfi. Listamennirnir hafa aðgang að Heimilisiðnaðarsafninu og geta stundað þar rannsóknarvinnu. Þeir skipuleggja og taka þátt í ýmsum menningarlegum viðburðum og samstarfsverkefnum á svæðinu.

Textílsetur Íslands er til húsa á Árbraut 31, Blönduósi

Sjá vef Textílseturs Íslands