- Þjónusta
- Umhverfi og mannlíf
- Stjórnsýsla
- Sveitarstjórn
- Nefndir
- Fundargerðir
- Gjaldskrá
- Reglur & samþykktir
- Umsóknir
- Fjármál
- Skipulagsmál
- Skrifstofa og starfsmenn
- Fréttabréf
- Byggðasamlög
- Fundargerðir Húnabyggðar
Heimilisiðnaðarsafnið var upphaflega opnað árið 1976 á 100 ára afmæli Blönduósbæjar sem verslunarstaðar. Það voru konur innan raða Sambands austur-húnvetnskra kvenna, sem eru samtök kvenfélaganna í hérðinu, sem lögðu grunninn að safninu. Safnið er í glæsilegu húsi þar sem aðgengi gesta er með ágætum. Munir safnsins mynda nokkrar ólíkar og sjálfstæðar sýningar: útsaumssýning, sýning á íslenskum þjóðbúningum, Halldórustofa sem helguð er lífi og starfi Halldóru Bjarnadóttur (1873-1981), ullarsýning og árlega ný sérsýning textíllistafólks.
Safnið er til húsa á Árbraut 29 Blönduósi og eru opnunartímar eftirfarandi, frá 1. júní - 31. ágúst: 10:00-17:00 alla daga og yfir vetrartímann er það opið eftir samkomulagi.