- Þjónusta
- Umhverfi og mannlíf
- Stjórnsýsla
- Sveitarstjórn
- Nefndir
- Fundargerðir
- Gjaldskrá
- Reglur & samþykktir
- Umsóknir
- Fjármál
- Skipulagsmál
- Skrifstofa og starfsmenn
- Fréttabréf
- Byggðasamlög
- Fundargerðir Húnabyggðar
Bólstaðarhlíðarkirkja
Byggingarár 1888
Bólstaðarhlíð er vel í sveit sett og þaðan liggja fjölfarnar leiðir í allar áttir. Bæjarstæðið er fallegt þar sem Þverárdalur mætir Svartárdal. Snarbrött fjöll eru umhverfis bæinn sem er á sléttri grund skammt norðan Hlíðarár. Ekki er ljóst hvenær kirkja reis í Bólstaðarhlíð. Fyrst er getið um hana í Auðunarmáldaga frá um 1318. Var hún helguð helguð Mikael erkiengli í kaþólskum sið. Bólstaðarhlíðarkirkja er timburhús. Kirkjan stendur á steinssteyptum sökkli og er leðslumunstur dregið upp í grófa múrhúðun. Altaristafla, lítil olíumáluð mynd í umgerð, erlend, merkt C.R., en ekki ljóst hver málað hefur. Myndin er nokkuð óvenjuleg, sýnir hún Jesúm Krist við hægri hönd Guðs föður á himnum og sitja þeir í þrepum. Hennar er fyrst getið í úttekt 1874. Aðrir dýrmætir forngripir eru í kirkjunni.