- Þjónusta
- Umhverfi og mannlíf
- Stjórnsýsla
- Sveitarstjórn
- Nefndir
- Fundargerðir
- Gjaldskrá
- Reglur & samþykktir
- Umsóknir
- Fjármál
- Skipulagsmál
- Skrifstofa og starfsmenn
- Fréttabréf
- Byggðasamlög
- Fundargerðir Húnabyggðar
FjölbrautarskóliNorðurlands vestra starfrækir framhaldsdeild á Blönduósi í samstarfi við sveitarfélögin í Austur-Húnavatnssýslu.
Nemendur geta stundað dreifnám við FNV frá Blönduósi. Markmiðið er að nemendur geti lokið almennum greinum iðnbrauta og kjarnagreinum stúdentsbrauta í heimabyggð. Nemendur í dreifnámi taka þátt í öllum helstu viðburðum og ferðalögum á vegum skólans.
Nemendur í dreifnámi eru hluti af nemendahópum í FNV. Öll kennsla fer fram gegnum fjarfundabúnað frá Sauðárkróki og eru kennarar staðsettir þar. Kennarar setja inn efni á samskiptavefinn Moodle og nemendur skila verkefnum og sumum prófum þar í gegn. Nemendur í dreifnámi taka öll próf á Blönduósi.
Nemendur dreifnáms mæta í upphafi annar í skólann á Sauðárkróki og hitta kennara og stjórnendur. Alls eru 3-4 staðlotur á hverri önn, vika í senn. Staðloturnar eru mikilvægar, en markmiðið með þeim er að tengja saman nemendur og kennara. Auk þess hafa nemendur þá tækifæri til að taka þátt í félagslífi í stærra skólaumhverfi. Viðburðir hjá nemendafélaginu ráðast af dagsetningum staðlotanna, þannig að nemendur dreifnáms nái að taka þátt í stærstu viðburðum vetrarins. Ferðatilhögun hefur verið á þann veg að nemendur koma með strætó á sunnudagskvöldi og eru á heimavist FNV í fæði og húsnæði og fara svo einnig til baka með strætó á föstudegi eða laugardegi eftir atvikum. Á þessum dögum taka nemendur þátt í hefðbundnum kennslustundum, en geta auk þess nýtt sér þjónustu kennara í verkefnavinnu og einnig nota kennarar þessa tíma ef um verklega þætti er að ræða eða annarskonar vinnu sem betra er að hafa nemendur á staðnum.