Tónlistarskóli Austur Húnvetninga heldur tónleika
Tónlistarskóli Austur Húnvetninga heldur þrenna tónleika á næstu dögum og vikum
Fyrstu tónleikarnir verða á Húnavöllum, laugardaginn 29. apríl nk. og hefjast þeir klukkan 13.30. Laugardaginn 6. maí nk. verða tónleikar í Blönduósskirkju sem hefjast kl. 13.30 og daginn eftir, sunnudaginn 7. maí verða vortónleikar skólans í Hólaneskirkju á Skagaströnd.
Skólaslit Tónlistarskólans og afhending prófskírteina verður í Hólaneskirkju laugardaginn 20. maí nk. klukkan 16.
Fyrstu tónleikarnir verða á Húnavöllum, laugardaginn 28. apríl nk. og hefjast þeir klukkan 15.00. Laugardaginn 6. maí nk. verða tónleikar í Blönduósskirkju sem hefjast kl. 13.30 og daginn eftir, sunnudaginn 7. maí verða vortónleikar skólans í Hólaneskirkju á Skagaströnd.
Skólaslit Tónlistarskólans og afhending prófskírteina verður í Hólaneskirkju laugardaginn 20. maí nk. klukkan 16.
Frétt af Húni.is
Hvetjum fólk til að mæta og njóta tónlistar sem ungir tónlistarmenn flytja