Fréttir frá tónlistastarfinu í vetur
föstudagur 02.mars 2007 - Lestrar 447 - Athugasemdir (0)
Frá Tónlistarskóla Austur Húnvetninga
Skólastarfið hefur verið með ágætum nú í vetur og nemendur skólans
verið duglegir að koma fram og spila við hin ýmsu tækifæri. Margir nemendur hafa verið fengnir til að spila við messur.
Nú í febrúar fór Lúðrasveit Tónlistarskólans í æfingarbúðir að Varmalandi í Borgarfirði, nánar tiltekið helgina 16.-18. Komu þaðan sunnudaginn 18. (konudaginn) og héldu beint í sal Harmonikkuklúbbsins, sem er til húsa í Ósbæ, að spila við bollukaffið sem
Harmonikkuklúbburinn stendur fyrir á hverju ári. Einnig spiluðu aðrir nemendur Tónlistarskólans í Ósbæ við þetta tækifæri.
Þegar Kvenfélag Bólstaðarhlíðarhrepps hélt upp á 80 ára afmæli félagsins í Húnaveri laugardaginn 24.feb. þá spiluðu börn kvenfélagskvenna í þeim fagnaði. Síðan munu nemendur Tónlistarskólans spila við messur sem haldnar verða sunnudaginn 4. mars en þá er æskulýðsdagurinn.