Starf tónlistarskólans hófst að venju í lok ágúst, en kennslan í byrjun september. Í skólanum eru skráðir 147 nemandi til
náms í vetur:
Skiptist það þannig á milli deilda, á Húnavöllum eru 44, Blönduósi 55 og Skagaströnd 48.
Breytingar hafa orðið á kennaraliði skólans en Pál Szabo hætti störfum í haust og fékkst enginn kennari í hans stað
þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar. Vegna þess var lokað fyrir skráningu nemenda í haust á blásturshljóðfæri.
Mikil vinna fór í það að færa nemendur milli kennara svo að allir þeir sem höfðu sótt um í vor kæmust að.
Kennarar við skólann að þessu sinni eru:
Benedikt Bl Lárusson sem kennir á Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd.
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennir á Skagaströnd og Blönduósi.
Sigríður Sólveig Einarsdóttir kennir á Húnavöllum og er með undirleik fyrir söngnemendur á Blönduósi.
Stefán Jónasson kennir á Skagaströnd og Blönduósi.
Þórhallur Barðason kennir á Blönduósi og Skagaströnd.
Skarphéðinn H Einarsson kennir á Blönduósi og Húnavöllum.