Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

0.jpg1.jpg10.jpg11.jpg12.jpg13.jpg14.jpg15.jpg2.jpg3.jpg4.jpg5.jpg6.jpg7.jpg8.jpg9.jpg

Fréttir

Jólatónleikar


Hinir árlegu jólatónleikar verða haldnir í Húnavallaskóla mánudaginn 5. desember kl. 15:00.
Allir velkomnir

Kennarar
Tónlistarskóla A-Hún Húnavalladeild

Jólatónleikar Húnavöllum

Tónleikarnir vera haldnir miðvikudaginn 8. des í Húnavallaskóla og hefjast kl. 14.30.
Foreldrar og aðrir gestir velkomnir.

Kennarar.

Frá Tónlistarskólanum



Starf tónlistarskólans hófst að venju í lok ágúst, en kennslan í byrjun september. Í skólanum eru skráðir 147 nemandi til náms í vetur:
Skiptist það þannig á milli deilda, á Húnavöllum eru 44, Blönduósi 55 og Skagaströnd 48.

Breytingar hafa orðið á kennaraliði skólans en Pál Szabo hætti störfum í haust og fékkst enginn kennari í hans stað þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar. Vegna þess var lokað fyrir skráningu nemenda í haust á blásturshljóðfæri. Mikil vinna fór í það að færa nemendur milli kennara svo að allir þeir sem höfðu sótt um í vor kæmust að.

Kennarar við skólann að þessu sinni eru:
Benedikt Bl Lárusson sem kennir á Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd.
Hugrún Sif Hallgrímsdóttir kennir á Skagaströnd og Blönduósi.
Sigríður Sólveig Einarsdóttir kennir á Húnavöllum og er með undirleik fyrir söngnemendur á Blönduósi.
Stefán Jónasson kennir á Skagaströnd og Blönduósi.
Þórhallur Barðason kennir á Blönduósi og Skagaströnd.
Skarphéðinn H Einarsson kennir á Blönduósi og Húnavöllum.


Nýtt skipulag

Sveitarfélögin Blönduós, Húnavatnshreppur, Skagabyggð og sveitarféalgið Skagaströnd hafa stofnað byggðasamlag um rekstur Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga.
 
Samlagið heitir Byggðasamlag Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga
Heimili þess og varnarþing er í Húnavatnshreppi og sér Húnavatnshreppur um daglegan rekstur byggðasamlagsins.
 
Stjórn Byggðasamlagsins skipa:
 
Formaður.          Valgarður Hilmarsson.
Ritari.                Dagný Úlfarsdóttir.
aðrir í stjórn:      Tryggvi Jónsson og Halldór G Ólafsson.     
 
Stjórn byggðasamlagsins gegnir einnig hlutverki skólanefndar.
 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning