Húnavallaskóli

Húnavatnshreppur

Um skólann

 


Húnavellir
 541 Blönduós
 
Sími: 4524370
Fax: 4524281
hunav@ismennt.is
 
Skólastjóri
Sigríður B. Aadnegard

Fjöldi nemenda: 60

 Fjöldi bekkja: 10
Fjöldi kennara: 8
Aðrir starfsmenn: 8
     

Húnavallaskóli stendur við Reykjabraut í Austur-Húnavatnssýslu.  Skólinn þjónar íbúum Húnavatnshrepps sem varð til við sameiningu Bólstaðarhlíðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps, Torfalækjarhrepps og Áshrepps árið 2006.  Bygging skólahússins hófst sumarið 1965 að undangenginni samkeppni á meðal arkitekta.  Valin var teikning yfir byggingar skólans eftir Björn Ólafsson arkitekt sem þá var að ljúka námi í París.  Að skólanum stóðu 6 sveitahreppar í Austur-Húnavatnssýslu en þeir voru: Áshreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur, Engihlíðarhreppur, Sveinsstaðahreppur, Svínavatnshreppur og Torfalækjarhreppur.  Árið 1974 bættist svo Vindhælishreppur við sem rekstraraðili að skólanum. Aðalverktaki við byggingarframkvæmdirnar var h.f. Fróði á Blönduósi og yfirsmiður Einar Evensen byggingarmeistari.  Byggingarnefndina skipuðu oddvitar þeirra hreppa sem stóðu að skólanum, þeir Bjarni Ó Frímannsson Efrimýrum, Jón Tryggvason Ártúnum, Guðmundur B. Þorsteinsson Holti, Torfi Jónsson Torfalæk, Baldur Magnússon Hólabaki og Grímur Gíslason Saurbæ, sem var formaður nefndarinnar. 

Skólinn er byggður í landi Reykja við Reykjabraut en þar bjuggu hjónin Sólveig Erlendsdóttir og Páll Kristjánsson og sýndu þau málinu mikinn áhuga. 

Ákveðið var að nafn skólans yrði Húnavallaskóli en í samkeppni um nafngjöf hafði það nafn komið fram.  Skólinn var svo settur í fyrsta sinn þann 28. október 1969 og formlega vígður 7. nóvember 1970. 

Upphaflega var skólinn rekinn sem heimavistarskóli, eins og ráð hafði verið fyrir gert þó var 6 – 9 ára nemendum kennt í skólaseljum í Bólstað, Flóðvangi og að Fremstagili bæði vegna skorts á kennslurými sem og vegna langra akstursleiða.  Smám saman lögðust skólaselin niður, hið síðasta árið 1990. Heimavist var lögð niður í áföngum á árunum 1980 til 1982. Síðan þá hefur verið um heimanakstur nemenda að ræða.  Nemendafjöldi við skólann hefur orðið mestur um það bil 180 en nú á skólaárinu 2011-2012 eru 60 nemendur skráðir í skólann.

            Frá upphafi hafa 7 skólastjórar starfað við Húnavallaskóla.  Þeir eru Sturla Kristjánsson, Hafþór Sigurðsson, Eggert Levý, Jón Hannesson, Arnar Einarsson, Þorkell Ingimarsson og Sigríður B. Aadnegard.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning