HúnavellirSkólastjóri
Sigríður B. Aadnegard
Fjöldi nemenda: 60
Fjöldi kennara: 8
Húnavallaskóli stendur við Reykjabraut í Austur-Húnavatnssýslu. Skólinn þjónar íbúum Húnavatnshrepps sem varð til við sameiningu Bólstaðarhlíðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps, Torfalækjarhrepps og Áshrepps árið 2006. Bygging skólahússins hófst sumarið 1965 að undangenginni samkeppni á meðal arkitekta. Valin var teikning yfir byggingar skólans eftir Björn Ólafsson arkitekt sem þá var að ljúka námi í París. Að skólanum stóðu 6 sveitahreppar í Austur-Húnavatnssýslu en þeir voru: Áshreppur, Bólstaðarhlíðarhreppur, Engihlíðarhreppur, Sveinsstaðahreppur, Svínavatnshreppur og Torfalækjarhreppur. Árið 1974 bættist svo Vindhælishreppur við sem rekstraraðili að skólanum. Aðalverktaki við byggingarframkvæmdirnar var h.f. Fróði á Blönduósi og yfirsmiður Einar Evensen byggingarmeistari. Byggingarnefndina skipuðu oddvitar þeirra hreppa sem stóðu að skólanum, þeir Bjarni Ó Frímannsson Efrimýrum, Jón Tryggvason Ártúnum, Guðmundur B. Þorsteinsson Holti, Torfi Jónsson Torfalæk, Baldur Magnússon Hólabaki og Grímur Gíslason Saurbæ, sem var formaður nefndarinnar.
Skólinn er byggður í landi Reykja við Reykjabraut en þar bjuggu hjónin Sólveig Erlendsdóttir og Páll Kristjánsson og sýndu þau málinu mikinn áhuga.
Ákveðið var að nafn skólans yrði Húnavallaskóli en í samkeppni um nafngjöf hafði
það nafn komið fram. Skólinn var svo settur í fyrsta sinn þann 28. október 1969 og formlega vígður 7. nóvember
1970. 
Upphaflega var skólinn rekinn sem heimavistarskóli, eins og ráð hafði verið fyrir gert þó var 6 – 9 ára nemendum kennt í skólaseljum í Bólstað, Flóðvangi og að Fremstagili bæði vegna skorts á kennslurými sem og vegna langra akstursleiða. Smám saman lögðust skólaselin niður, hið síðasta árið 1990. Heimavist var lögð niður í áföngum á árunum 1980 til 1982. Síðan þá hefur verið um heimanakstur nemenda að ræða. Nemendafjöldi við skólann hefur orðið mestur um það bil 180 en nú á skólaárinu 2011-2012 eru 60 nemendur skráðir í skólann.
Frá upphafi hafa 7 skólastjórar starfað við Húnavallaskóla. Þeir eru Sturla Kristjánsson, Hafþór Sigurðsson, Eggert Levý, Jón Hannesson, Arnar Einarsson, Þorkell Ingimarsson og Sigríður B. Aadnegard.