Vorverkefni 2010
Almennt - ţriđjudagur 18.maí 2010 - Lestrar 73 - Athugasemdir (0)

Á hverju vori vinna nemendur 1.-9. bekkjar vorverkefni. Skólastarfið er stokkað upp og unnið á öðrum grunni en venjulega.
Eftirfarandi markmið eru lögð til grundvallar vorverkefnis: að bregðast við lengdum starfstíma grunnskóla, að efla vitund nemenda fyrir
náttúrunni og þeim breytingum sem vorið ber með sér, að laga skólahald að óskum og þörfum foreldra sem búa í sveit
eða dreifbýli, að kynna heimabyggðina fyrir nemendum. Vorverkefni skólans hófst 12. maí og því lýkur 26. maí.
Innlögn vorverkefnis í 5.-9. bekk fór fram miðvikudaginn 12. maí. Þema verkefnisins í ár er umhverfið og ég. Eftir
að verkefnið hafði verið lagt inn hjá nemendum þá var farið með rútu í Gunnfríðarstaðarskóg í Langadal.
Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga hefur verið með starfsemi á jörðinni Gunnfríðarstöðum
síðan haustið 1961, þegar félagið fékk jörðina að gjöf frá heiðurshjónunum Helgu Jónsdóttur og
Steingrími Davíðssyni. Á staðinn var mættur Páll Ingþór Kristinsson, formaður Skógræktarfélags A-
Húnavatnssýslu. Páll tók vel á móti hópnum og fræddi okkur um sögu skógarins og skógrækt
almennt. Hópurinn dvaldi í skóginum undir leiðsögn Páls í rúman klukkutíma og er óhætt að segja að sú stund
hafi liðið hratt og viljum við þakka Páli kærlega fyrir fróðlega og skemmtilega leiðsögn um skóginn. Í bakaleiðinni
þegar ekið var upp úr Langadalnum þá vildi það óhapp til að rútan hjá Halli Hilmarssyni byrjaði að spóla á
mjúkum og gljúpum veginum. Allt kom fyrir ekki þó svo allir færu út til að létta bifreiðina og greip því Hallur til
þess ráðs að hringja í Ingabjörn Sigurjónsson, bónda á Tindum og kom hann á stórri dráttarvél með drifi á
öllum hjólum og bjargaði hópnum úr prísundinni. Ekki var laust við að sumir í hópnum gleddust yfir þessu ævintýri
þó svo þeir hinir sömu kæmu klukkutíma of seint í hádegismat fyrir vikið. Myndir frá ferðinni má sjá hér
á vefnum.