Húnavallaskóli

Húnavatnshreppur

Fréttir

Vorverkefni 2010

Á hverju vori vinna nemendur 1.-9. bekkjar vorverkefni. Skólastarfið er stokkað upp og unnið á öðrum grunni en venjulega.
Eftirfarandi markmið eru lögð til grundvallar vorverkefnis: að bregðast við lengdum starfstíma grunnskóla, að efla vitund nemenda fyrir náttúrunni og þeim breytingum sem vorið ber með sér, að laga skólahald að óskum og þörfum foreldra sem búa í sveit eða dreifbýli, að kynna heimabyggðina fyrir nemendum.  Vorverkefni skólans hófst 12. maí og því lýkur 26. maí.  Innlögn vorverkefnis í 5.-9. bekk fór fram miðvikudaginn 12. maí.  Þema verkefnisins í ár er umhverfið og ég.  Eftir að verkefnið hafði verið lagt inn hjá nemendum þá var farið með rútu í Gunnfríðarstaðarskóg í Langadal.  Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga  hefur verið með starfsemi á jörðinni Gunnfríðarstöðum síðan haustið 1961, þegar félagið fékk jörðina að gjöf frá heiðurshjónunum Helgu Jónsdóttur og Steingrími Davíðssyni.  Á staðinn var mættur Páll Ingþór Kristinsson, formaður Skógræktarfélags A- Húnavatnssýslu.  Páll tók vel á móti hópnum og  fræddi okkur um sögu skógarins og skógrækt almennt.  Hópurinn dvaldi í skóginum undir leiðsögn Páls í rúman klukkutíma og er óhætt að segja að sú stund hafi liðið hratt og viljum við þakka Páli kærlega fyrir  fróðlega og skemmtilega leiðsögn um skóginn.  Í bakaleiðinni þegar ekið var upp úr Langadalnum þá vildi það óhapp til að rútan hjá Halli Hilmarssyni byrjaði að spóla á mjúkum og gljúpum veginum.  Allt kom fyrir ekki þó svo allir færu út til að létta bifreiðina og greip því Hallur til þess ráðs að hringja í Ingabjörn Sigurjónsson, bónda á Tindum og kom hann á stórri dráttarvél með drifi á öllum hjólum og bjargaði hópnum úr prísundinni.  Ekki var laust við að sumir í hópnum gleddust yfir þessu ævintýri þó svo þeir hinir sömu kæmu klukkutíma of seint í hádegismat fyrir vikið.  Myndir frá ferðinni má sjá hér á vefnum.    


Engar umrćđur fundust fyrir ţessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning