Vorferđalög 2010
Almennt - fimmtudagur 13.maí 2010 - Lestrar 81 - Athugasemdir (0)

Þann 11. maí voru flestir nemendur Húnavallaskóla í vorferðalögum. 1.-4. bekkur tók stefnuna á Hvammstanga þar
sem skoðað var Selasetrið og farið í göngutúr. Hádegismatur var snæddur í Flóðvangi. Til stóð að fara
í sund á Húnavöllum í lok ferðarinnar en þar sem veðrið var eins og best verður á kosið þá féll það
niður og útileikir stundaðir í þess stað.
Hópurinn kom í Húnavelli um klukkan 15:30 og síðan var farið heim með skólabílum. 5., 6. og 7. bekkur hélt
upp frá Húnavöllum klukkan 9:00 og tók stefnuna á Akureyri. Byrjað var á að skoða Flugsafnið og eftir nestistíma voru
Nonnahús og Minjasafnið á Akureyri heimsótt. Um klukkan 14:00 var haldið til Dalvíkur og byggðasafnið á
staðnum heimsótt. Eftir það var afgangurinn af nestinu snæddur og síðan farið í sund á Dalvík.
Dagurinn endaði síðan á pitsahlaðborði á veitingastaðnum Pitsa Vero. Haldið var heimleiðis um klukkan 19:00 um
kvöldið. 8. og 9. bekkur fór í tveggja daga ferðalag þetta árið. Lagt var af stað um klukkan 9:00
mánudaginn 10. maí. ferðinni var heitið á Snæfellsnes og ekið sem leið lá vestur í Dali um
Laxárdalsheiði. Áð var í Dalasýslu og snætt nesti og síðan ekið í Stykkishólm. Þar
var farið í svokallaða Suðureyjaferð en það er skemmtisigling um suðureyjar Breiðafjarðar. Ferðin tók um 2 klukkustundir og
15 mínútur og var nemendum boðið upp á nýveiddan skelfisk og ígulkerjahrogn, ásamt því að skoða fjöldann allan af
öðrum sjávardýrum. Í ferðinni er einnig skoðað fjölskrúðugt fuglalíf Breiðafjarðar, sérkennilegar
bergmyndanir, siglt er inn í sjávarfallastrauma og ýmis sérkenni eyjanna skoðuð. Um borð var einnig pizzuhlaðborð, þar sem
boðið var upp á 3 eða 4 tegundir og gos með. Eftir sjóferðina var farið í sund í Stykkishólmi en þar er mjög
skemmtileg laug með rennibrautum og fleiru. Frá Stykkishólmi var síðan ekið í náttstað í Lýsuhólsskóla
sem er á sunnanverðu nesinu. Slegið var upp grilli á staðnum og eitt og annað gert til skemmtunar. Borðaður var
góður morgunverður á Lýsuhóli á þriðjudagsmorguninn og ferðinni síðan haldið áfram. Ekið var
í vesturátt að Búðum og Arnarstapa, þar sem umhverfið var skoðað og síðað var gengið frá Arnarstapa og yfir að Hellnum
þar sem Kolbeinn bílstjóri beið með rútuna. Þá var haldið í Dritvík og reyndu nemendur sig
við steinana frægu sem þar eru. Áfram var ekið vestur fyrir Snæfellsnes og norður um, stoppað í söluskála í
Ólafsvík þar sem hver keypti fyrir sig það sem hugurinn girntist. Síðan var ekið í Barnarhöfn þar sem tekið var
hús á Hildibrandi Bjarnasyni og kirkjan á staðnum skoðuð sem og hákarlaverksmiðjan sem er landsfræg fyrir frábæran
hákarl. Þegar þarna var komið sögu var orðið langt liðið á dag og tímabært að halda heim á
leið. Allar voru þessar ferðir mjög vel heppnaðar og veðrið nánast lék við ferðalangana.
Aðfaranótt föstudagsins 14. maí halda síðan nemendur 10. bekkjar ásamt umsjónarkennara sínum og einu foreldri í hina árlegu
útskriftarferð til Kaupmannahafnar. Hópurinn kemur heim um miðjan dag fimmtudaginn 20. maí og vonum við að ferðin verði vel heppnuð
og öllum til ánægju.