Skólaslit 2010
Almennt - ţriđjudagur 01.júní 2010 - Lestrar 114 - Athugasemdir (0)

Skólaslit Húnavallaskóla fóru fram í blíðskaparveðri klukkan 14:00 föstudaginn 28. maí. Hátíðin
hófst með því að lúðrasveit skólans lék nokkur lög undir stjórn Skarphéðins Einarssonar, skólastjóra
Tónlistaskóla Austur-Húnvetninga.
Dagskráin var með hefðbundnum hætti og hófst með því að séra Sveinbjörn R. Einarsson, sóknarbrestur flutti
hugvekju, þá ávarpaði Líney Árnadóttir í Steinnesi samkomugesti fyrir hönd foreldra útskriftarnemenda og Hjörtur Þór
Magnússon flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnemenda. Útskriftarnemendur í 10. bekk fluttu tvö tónlistaratriði en það voru
Sandra Haraldsdóttir sem lék á klarinett og Hjörtur Þór Magnússon á trompet. Fjórir nemendur hlutu sérstakar
viðurkenningar við útskrift fyrir góðan árangur og námsáhuga. Þetta voru: Stefán Logi Grímsson fyrir ensku,
náttúrufræði og samfélagsfræði, Brynjar Geir Ægisson fyrir dönsku og stærðfræði, Klaudija Kaubryte fyrir íslensku og
Hjörtur Þór Magnússon fyrir íþróttir. Þórunn Ragnarsdóttir á Kornsá lætur nú af störfum við
skólann eftir 25 ára farsælt og gott starf. Var Þórunn heiðruð sérstaklega á skólaslitunum og Þorkell Ingimarsson,
skólastjóri færði henni þakkir og gjöf frá skólanum. Öll athöfnin tók um eina og hálfa klukkustund og lauk að venju
með kaffiveitingum í borðsal skólans.