Skólaskák
Almennt - fimmtudagur 06.maí 2010 - Lestrar 84 - Athugasemdir (0)
Kjördæmismót í skólaskák var haldið í Grunnskólanum á Blönduósi laugardaginn 1. maí.
Því miður voru aðeins keppendur frá tveimur skólum en það voru Grunnskólinn á Blönduósi sem sendi keppendur í
yngri flokk og Húnavallaskóli sem sendi keppendur í bæði yngri og eldri flokk. Sigurvegari í eldri flokki var Stefán Logi Grímsson, 10. bekk
í Húnavallaskóla og sigurvegari í yngri flokki var Hilmar Logi Óskarsson, 5. bekk í Húnavallaskóla. Með sigri áunnu drengirnir
sér rétt til þátttöku á landsmóti í skólaskák sem verður haldið í Reykjavík dagana 6. til 9. maí.
Við óskum drengjunum til hamingju með árangurinn og vonum að hann hvetji þá til frekari dáða í framtíðinni.