Skólasetning 2010
Almennt - laugardagur 21.ágúst 2010 - Lestrar 95 - Athugasemdir (0)
Húnavallaskóli verður settur fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 14.00. Allir vinir og velunnarar skólans eru velkomnir. Nemendur 2.-10. bekkjar mæta í skólann með skólabílum föstudaginn 27. ágúst klukkan 10.00 og fara heim klukkan 13.00. Nemendur 8. bekkjar verða í fermingarferðalagi með sóknarpresti sínum þessa viku í Vatnaskógi. Mánudaginn 30. ágúst mæta nemendur 2.-10. bekkjar klukkan 8.30 með skólabílum. Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir sérstaklega af umsjónarkennara.
Skólastjóri