Húnavallaskóli

Húnavatnshreppur

Fréttir

Skáld í skólum

Í dag fengum við góða gesti það voru þær Kristín Helga Gunnarsdóttir og Margrét Örnólfsdóttir rithöfundar. Þær sögðu okkur frá störfum sínum og lásu úr verkum sínum. Þetta var ánægjuleg stund sem allir höfðu gagn og gaman af.


Margrét Örnólfsdóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttir elta sögupersónur sínar til Kína, upp á öræfin og inn í hulduheima. Veganestið er hugrekki og vinátta.

Búið til í Kína – Made inChina:Hvað eiga sonur ríkasta manns Íslandssögunnar og stelpa í þrælavinnu í leikfangaverksmiðju í Kína sameiginlegt? Við fyrstu sýn virðist það kannski harla fátt, en þegar Ari fær í hendur leikfang sem Jinghua setti saman með eigin höndum hafa örlögin fléttað sögur þeirra saman.

Ríólítreglan: Starfsmaður félagsmiðstöðvar hverfur sporlaust. Félagar ríólítreglunnar þurfa að standa saman andspænis ógnarkröftum hulduheima.

Háskalegur huldutryllir æðir niður til Kólumbíu, vestur á firði, í úthverfin og ekki síst upp Jökulgil þar sem hulduverur standa vörð um dýrðina og kalla menn í björgin.

Margrét Örnólfsdóttur hefur skrifað barnabækur, sjónvarpsefni og kvikmyndahandrit, en var að auki á sínum tíma í hljómsveitinni Sykurmolunum. Kristín Helga er löngu landsþekkt fyrir bækur sínar, ekki síst hinar sívinsælu sögur um Fíusól.

 



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning