Lokadagur 2010
Almennt - mánudagur 31.maí 2010 - Lestrar 64 - Athugasemdir (0)

Lokadagurinn var haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 26. maí. Nemendur mættu í skólann klukkan 10:00 eins og hefð er
fyrir.
Dagurinn hófst með því að krakkarnir fóru í kennslustofur með umsjónarkennurum og afhentu vorverkefnin sín.
Síðan hófst fjörið með leikjum, sundlaugarfjöri og pylsuáti og stóð gleðin til klukkan 14:00. Vorverkefni voru almennt mjög vel
unnin að þessu sinni og er ljóst að nemendur hafa laggt sig fram og mörg falleg verkefni prýddu skólann við skólaslitin. Myndir frá
deginum má sjá hér á vefnum.