Húnavallaskóli

Húnavatnshreppur

Fréttir

Litlu jólin 2011

Mánudaginn 19. desember verða Litlu-jólin haldin í Húnavallaskóla.  Allir nemendur mæta í skólann klukkan 10.00 með skólabílum. 

Skemmtiatriði hefjast klukkan 13:30 og eru foreldrar og nánustu ættingjar sem og aðrir velunnarar skólans velkomnir.  Nemendur í 1.-5.  bekk fara heim með skólabílum eða foreldrum að lokinni dagskrá eða um kl. 16:00.

Diskótek fyrir 6.-10. bekk stendur til klukkan 21.00. 

Kennsla hefst að loknu jólafríi miðvikudaginn 4. janúar.  Nemendur mæta í skólann þann dag klukkan 10.00.  Dagurinn verður að hluta nýttur til að ganga frá jólaskrauti og öðru sem viðkemur jólunum.

Jólakveðja starfsfólk Húnavallaskóla



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning