Húnavallaskóli

Húnavatnshreppur

Fréttir

Leikhúsferð og pizzahlaðborð

Fyrirhuguð er leikhúsferð fyrir nemendur Húnavallaskóla og Vallarbóls föstudaginn 4. nóvember næstkomandi. Farið verður á Sauðárkrók að sjá barnaleikritið “ Allt í plati” sem er verið að sýna þar.

Farið verður beint úr skólanum og fá börnin hressingu áður en lagt er af stað. Fyrir sýningu verður farið í Ólafshús þar sem býður okkar pizzahlaðborð með frönskum og gosi. Sýningin hefst kl. 19:30.

          Rúta fer frá Húnavöllum um Blönduós og bílstjóri er Hallur Hilmarsson. Í bakaleið verður stoppað í Húnaveri, Húnavöllum og Blönduósi. Síminn hjá Halli er 8927249.

          Miði í leikhús og pizzahlaðborð er 2.500.- sem tekið er við í skólanum áður en farið er af stað. Best ef börnin eru með nákvæmlega fyrir miðanum. Sælgætispeningar, hámark 500-.

          Foreldrar, yngri systkini, afar, ömmur, kennarar og aðrir sem áhuga hafa á að koma með eru að sjálfsögðu velkomin. Því fleiri, því betra.  Æskilegt er að yngri börnin séu í fylgd með fullorðnum.

          Þátttaka tilkynnist símleiðis fyrir kl. 22 mánudagskvöldið 31. október til stjórnar foreldrafélagssins.

Vonumst til að sem flestir geti komið og skemmt sér saman

                                      Stjórn foreldarfélags Húnavallaskóla

Birgitta sími 4527119/8917119

Sonja    sími 4527174/6167449

Haddý  sími 4527124/8499851



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning