Eldvarnir
Almennt - þriðjudagur 22.nóvember 2011 - Lestrar 23 - Athugasemdir (0)

Hilmar Frímannsson slökkviliðsstjóri heimsótti nemendur 3. og 4. bekkjar í dag og fræddi um eldvarnir. Nemendur 3. bekkar fengu bók um systkinin Loga og Glóð og vasaljós að gjöf. Allir nemendur í 3. og 4. bekk fengu svo handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimila með sér heim.
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) efnir til átaks um að fræða fólk um eldvarnir og mikilvægi þeirra dagana 18.-25. nóvember og er heimsóknin liður í því átaki.
Slökkviliðsmenn hafa áhyggjur af berskjölduðum heimilum.
Yfir helmingur heimila án reykskynjara, slökkvitækis eða eldvarnateppis.
Um þriðjungur heimila með engan eða aðeins einn reykskynjara.