Húnavallaskóli

Húnavatnshreppur

Fréttir

Skáld í skólum

Í dag fengum við góða gesti það voru þær Kristín Helga Gunnarsdóttir og Margrét Örnólfsdóttir rithöfundar. Þær sögðu okkur frá störfum sínum og lásu úr verkum sínum. Þetta var ánægjuleg stund sem allir höfðu gagn og gaman af.


Lesa meira

Foreldraviđtöl


Þriðjudaginn 7. febrúar 2012 fara fram foreldraviðtöl í skólanum. Foreldrar/forráðamenn hafa verið  boðaðir til viðtals við umsjónarkennara. Kennsla samkvæmt stundaskrá fellur niður þann dag.

Aðrir kennarar verða einnig til viðtals eftir þörfum.


Skák


Skákdagurinn var haldinn um land allt þann fimmtudaginn 26. janúar. Skákdagurinn er tileinkaður Friðriki Ólafsyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga og fyrrverandi forseta Alþjóða skáksambandsins og var lengi talin meðal bestu skákmanna heims.
Skáksambandið hvatti grunnskóla landsins til að taka þátt undir kjörorði dagsins „Allir saman“.
Hér í Húnavallaskóla var haldið skákmót í janúar, þar kepptu nemendur úr 6.-10 bekk.
Vinningshafar:
Eldri flokkur (8.-10. bekkur) Guðmar M. Óskarsson 9. bekk
Yngri flokkur (6.-7.bekkur) Jóhann Einar Óskarsson 7. bekk

Síðustu vikur hafa nemendur getað telft í frímínútum og eru margir sem nýta sér það.

JUDO


Æfingar í Judo byrja miðvikudaginn 1. febrúar kl.18:00-19:30 og verða haldnar í Íþróttamiðstöðinni Á Blönduósi. Kennari verður Haukur Suska Garðarsson og honum til aðstoðar verður Magnús Valur Ómarsson. Æfingarnar verða öllum opnar frá 1. bekk í grunnskóla og eru þeir sem ekki eiga judo búninga beðnir um að mæta í langerma íþróttagöllum sem mega verða fyrir hnjaski.
Haukur og Magnús

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning