Húnavallaskóli

Húnavatnshreppur


Í grunnskólalögum er kveðið á um samskipti heimila og skóla.  Þar er lögð áhersla á mikilvægi góðrar samvinnu hvað varðar kennslu og uppeldi nemenda.  Ennfremur er í lögum um grunnskóla fjallað um upplýsingaskyldu skólanna.

Húnavallaskóli vill að foreldrar og forráðamenn séu á hverjum tíma sem best upplýstir um skólastarfið.  Þannig er líklegra að samkennd verði meðal foreldra og starfsmanna um hag nemenda og skólans. 

Með upplýsingum, fréttum og tilkynningum á veraldarvefnum verður enn frekara upplýsingaflæði frá skólanum út til samfélagsins sem hann þjónar. 

Við sem störfum við Húnavallaskóla höfum orðið þess vör að foreldrar eru jákvæðir í garð skólans, hafa góðan skilning á skólastarfinu og með öflugu samstarfi heimilanna og skólans mun ímynd Húnavallaskóla út á við styrkjast.

Þorkell Ingimarsson, skólastjóri

 

Fréttir

Skólasetning 2010

Húnavallaskóli verður settur fimmtudaginn 26. ágúst klukkan 14.00.  Allir vinir og velunnarar skólans eru velkomnir.  Nemendur 2.-10. bekkjar mæta í skólann með skólabílum  föstudaginn 27. ágúst klukkan 10.00 og fara heim klukkan 13.00.  Nemendur 8. bekkjar verða í fermingarferðalagi með sóknarpresti sínum þessa viku í Vatnaskógi.  Mánudaginn 30. ágúst mæta nemendur 2.-10. bekkjar klukkan 8.30 með skólabílum.  Nemendur 1. bekkjar verða boðaðir sérstaklega af umsjónarkennara.

 

                                                                                           Skólastjóri


Skólaslit 2010


Skólaslit Húnavallaskóla fóru fram í blíðskaparveðri klukkan 14:00 föstudaginn 28. maí.  Hátíðin hófst með því að lúðrasveit skólans lék nokkur lög undir stjórn Skarphéðins Einarssonar, skólastjóra Tónlistaskóla Austur-Húnvetninga. 
Lesa meira

Lokadagur 2010


Lokadagurinn var haldinn hátíðlegur miðvikudaginn 26. maí.  Nemendur mættu í skólann klukkan 10:00 eins og hefð er fyrir. 
Lesa meira

Vorverkefni 2010


Á hverju vori vinna nemendur 1.-9. bekkjar vorverkefni. Skólastarfið er stokkað upp og unnið á öðrum grunni en venjulega.
Lesa meira

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning