Húnavatnshreppur gengst fyrir ýmis konar stuðningi og hvatningu til íbúa sinna. Er markmið hreppsnefndar að gefa fólki kost á
ýmis konar þjónustu til að auðvelda því búsetu í hreppnum.
Reglur um afslátt af
fasteignaskatti í Húnavatnshreppi
1. Húnavatnshreppur greiðir námsstyrki til framhaldskólanema á vorönn 2013.
· Greiddur er námsstyrkur til unglinga sem stunda nám í menntaskóla, fjölbrautarskóla
eða sambærilegum menntastofnunum.
· Greiddar eru 50 þúsund krónur á önn.
· Almennt skal miða við níu annir eftir grunnskóla að 24. aldursári.
· Greiðslur fari fram um miðjan apríl.
· Nemendur þurfa að senda staðfestingu um að þeir stundi fullt nám í viðkomandi
skóla til skrifstofu Húnavatnshrepps áður en greiðsla fer fram.
2. Heimaþjónusta verður greidd skv. samningi við Félagsþjónustu A-Hún