Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Fjárhagsáætlun

Húnavatnshrepps 2007.

Fjárhagsáætlun fyrir árið 2007 einkennist fyrst og fremst af mótun nýs sveitarfélags og þeim vilja hreppsnefndar að auka þjónustustig stofnana sveitarfélagsins.

Samkvæmt deiliskipulagstillögu fyrir Húnavelli, sem nú er í skipulagsferli er þar gert ráð fyrir gerð sparkvallar, tjaldstæðis, byggingu íbúðarhúsnæðis og leikskóla.

Heildarfjárfestingar ársins eru áætlaðar um 97 milljónir, þar af er áætlaður hlutur Jöfnunarsjóðs í gerð leikskóla um 18. milljónir.

Eftirfarandi eru nokkrar lykiltölurúr fjárhagsáætlun 2007.

Tekjur/gjöld:

Fjárhagsáætlunin fyrir árið 2007 gerir ráð fyrir að heildartekjur A og B hluta sveitarsjóðs verði rúmar 255 milljónir króna. Af heildartekjum eru skatttekjur áætlaðar 127 milljónir og framlag úr Jöfnunarsjóði 114 milljónir.

Rekstrargjöld A og B hluta án fjármagnsliða eru áætluð tæpar 244 milljónir króna og fjármagnsliðir eru áætlaðir jákvæðir um tæpar 5 milljónir króna. Rekstur samstæðunnar er því jákvæður um rúmar 16 milljónir króna.


Flokkun útgjalda:

Af einstökum málaflokkum eru mest útgjöld til fræðslu- og uppeldismála, en þar er gert ráð fyrir útgjöldum upp á tæpar 143 milljónir króna. Til félagsþjónustunnar er áætlað að fari tæpar 17 milljónir, til menningarmála um 8,5 milljónir, til æskulýðs- og íþróttamála um 2,3 milljónir, til hreinlætismála um 12,1 milljón, til brunamála og almannavarna um 6,5 milljónir, til yfirstjórnar og ýmissa sameiginlegra liða um 24 milljónir, til atvinnu- og umhverfismála um 8,7 milljónir og til skipulags- og byggingarmála um 2,7 milljónir.


Fjárfestingar:

Á árinu 2007 er áætluð bygging á leikskóla við Húnavelli. Áætluð stærð leikskóla er um 200 m2 og stærð lóðar um 800m2. Heildarkostnaður er áætlaður um 53 milljónir króna, með tækjakaupum. Áætlað framlag frá Jöfnunarsjóði vegna byggingar leikskóla er 18 milljónir króna. Undirritað hefur verið samkomulag við KSÍ um byggingu sparkvallar við Húnavallaskóla áætlaður kostnaður sveitarfélagsins í sparkvelli er 10,6 milljónir. Fjárfestingar vegna skóla eru áætlaðar 4,6 milljónir, í kaup og uppsetningu á rotþróm eru áætlaðar 10 milljónir, til hlutafjárkaupa í Vilko 3,7 milljónir, vegna fjárfestinga í ljósastaurum á lögbýlum eru áætlaðar 8 milljónir, vegna bílakaupa eru áætlaðar 2 milljónir og vegna undirbúnings við byggingu íbúða 5 milljónir.

Gert er ráð fyrir að lántaka á árinu vegna framkvæmda verði 30 milljónir.

Sjá nánari útlistun í formi Fjárhagsáætluninnar hér


Húnavatnshreppi 7. mars 2007
Sveitarstjóri Húnavatnshrepps.

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 25
Samtals: 336908

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning