Íbúahátið Húnavatshrepps
mánudagur 26.júlí 2010 - Lestrar 105 - Athugasemdir (0)
Íbúahátíð Húnavatnshrepps
Ákveðið hefur verið að halda íbúahátíð þann 12. ágúst nk. Hátíðin verður haldinn í Húnaveri og vonast undirbúningsnefnd til að sem flestir sjái sér fært að mæta. Markmiðið með hátíðinni er að sveitungar hittist, gleðjist og eigi góðan dag saman. Þetta er í fjórða skipti sem slík hátíð er haldin og hvetjum við fólk til að hafa samband ef það vill móta dagskrána í ár. Allar hugmyndir eru vel þegnar. Framkvæmdin er í höndum heimilsfólks að Holti á Ásum, Brekkukoti og Brúarhlíð munu þau auglýsa nánari dagskrá síðar.
Kveðja Undirbúningsnefndin