Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Fréttir

Íbúafundur 1. febrúar 2010


Aðalskipulag Húnavatnshrepps 2010-2022

ÍBÚAFUNDUR

Boðað er til almenns íbúafundar um tillögur að aðalskipulagi Húnavatnshrepp 2010-2022.  Kynnt verður tillaga að landnotkun fyrir sveitarfélagið í heild og þéttbýli á Húnavöllum og auk þess umhverfisskýrsla aðalskipulagsins. 
Í aðalskipulagi er mörkuð stefna sveitarstjórnar um landnotkun í sveitarfélaginu til framtíðar. Tekin eru frá svæði fyrir samgöngu- og þjónustukerfi, atvinnusvæði, íbúðarbyggð, frístundabyggð, verndarsvæði o.fl.

Megin tilgangur fundarins er að gefa íbúum og hagsmunaaðilum tækifæri til að koma á framfæri athugasemdum áður en gengið verður frá aðalskipulagstillögunni til auglýsingar.  Skipulagsráðgjafar frá Landmótun gera grein fyrir tillögunum og taka á móti athugasemdum. Fulltrúi Vegagerðarinnar mun kynna tillögu að nýjum stofnvegi, Húnavallaleið.
Íbúar eru hvattir til að mæta og hafa þannig áhrif á það samfélag sem þeir búa í.

Fundurinn verður haldinn í Húnvallaskóla mánudaginn  1. febrúar  n.k. klukkan 20:00

Jens P Jensen
sveitarstjóri Húnavatnshrepps



Engar umræður fundust fyrir þessa frétt.
Athugasemdir :

:

:


:

:


captcha :


Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 35
Samtals: 249244

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning