Góðverkadagurinn
mánudagur 20.febrúar 2012 - Lestrar 12 - Athugasemdir (0)

Dagana 20. – 24. febrúar nk. verða Góðverkadagar haldnir um land allt undir yfirskriftinni „Góðverk dagsins“ .
Góðverkadagarnir eru ný útfærsla á nær aldagamalli hefð og loforði skáta um að gera að minnsta kosti eitt góðverk á dag.
Verkefnið miðast við að árlega verði haldnir sérstakir Góðverkadagar seinnipart febrúarmánaðar með virkri þátttöku allra landsmanna.
- Markmiðið með verkefninu „Góðverk dagsins“ er að hvetja landsmenn til athafna og umhugsunar um að láta gott af sér leiða, sýna náungakærleik, vináttu, hjálpa öðrum og gera góðverk.
Smellið á myndina til að kynna ykkur málið nánar - hvetjum alla til að gera góðverk :)