Auglýsing - umsjónaraðili með ferðaþjónustu
mánudagur 20.febrúar 2012 - Lestrar 39 - Athugasemdir (0)
Áfangi, gistiskáli við Kjalveg
Húnavatnshreppur óskar eftir að ráða umsjónaraðila með ferðaþjónustu í Áfangaskála sumarið 2012. Um er að ræða tímabilið frá 20. júní til 20. ágúst.
Svefnpláss er fyrir 32 í 8 herbergjum. Matsalur fyrir 40 manns, setustofa og heitur pottur.
Góð aðstaða er fyrir hesta, hesthús og tvö afgirt hólf.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Húnavatnshrepps og í síma 452 4661.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Húnavatnshrepps á Húnavöllum, eða á netfangið jens@emax.is
Umsóknarfrestur er til 14. mars 2012.
Sveitarstjóri Húnavatnshrepps