Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

Fréttir

Menningarráð Norðurlands vestra

 

Ein úthlutun á þessu ári

Verkefnastyrkir til menningarstarfs

Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.

Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa eina úthlutun á árinu 2012, með umsóknarfresti til og með 15. mars.

Menningarráð hefur ákveðið að þau verkefni hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

·        Fjölga atvinnutækifærum á sviði menningar og lista.

·        Efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu.

·        Stuðla að nýsköpun og þróun í menningu og menningartengdri ferðaþjónustu.

·        Menningarstarfsemi styðji við ferðaþjónustu.

·        Verkefni sem stuðla að þátttöku allra þjóðfélagshópa í menningarstarfi.

·        Verkefni sem leiða til samstarfs við önnur lönd á sviði menningar og lista.

·        Verkefni sem draga fram staðbundin eða svæðisbundin menningareinkenni eða menningararf.

Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Norðurlandi vestra.

Umsækjendum er bent á að kynna sér nánar Úthlutunarreglur 2012 á www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð.

Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Menningarráðs Norðurlands vestra sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð. Í umsókninni skal m.a. vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur.

 

Umsóknir skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545  Skagaströnd, eigi síðar en 15. mars 2012. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.

 

Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi Norðurlands vestra, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is.

 

 



Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 128
Samtals: 270463

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning