Íbúahátíð Húnavatnshrepps 2011
föstudagur 05.ágúst 2011 - Lestrar 162 - Athugasemdir (0)
Ákveðið hefur verið að halda íbúahátíð þann 11. ágúst nk.
Hátíðin verður haldinn að Húnavöllum og vonast undirbúningsnefnd til að sem flestir sjái sér fært að
mæta.
Markmiðið með hátíðinni er að sveitungar hittist, gleðjist og eigi góðan dag saman.
Þetta er í fimmta skipti sem slík hátíð er haldin og hvetjum við fólk til að mæta og eiga góða kvöldstund.
Framkvæmdin er í höndum Æskulýðs-, menninga- og íþróttamálanefndar Húnavatnshrepps en hana skipa Maríanna
Þorgrímsdóttir, Ólafur Magnússon og Magdalena Einarsdóttir.
Dagskrá
Kl: 19:00-20:00: Sveitafittness o.fl.
Kl: 20:00 Grillað lambakjöt og pylsur í
boði Húnavatnshrepps,
drykkir verða seldir á staðnum.
Glens og grín ásamt varðeldi fram eftir kvöldi eða eins og veður og stemning leyfir.
Skráning hjá nefndarmönnum og skal henni vera lokið mánudagskvöldið 8. ágúst næstkomandi.
Maríanna Þorgrímsdóttir s. 452-2654 / 865-5653
Ólafur Magnússon s. 452-4095 / 869-0705
Magdalena M. Einarsdóttir s. 452-4466 / 694-3392
Hlökkum til að sjá ykkur,
nefndin.