Dýralæknaþjónusta í Húnavatnssýslum

Samkvæmt heimasíðu Matvælastofnunar þá hefur verið gerður þjónustusamningur við Dýralæknaþjónustu
Stefáns Friðrikssonar ehf. á þjónustusvæði 4. Svæðið nær yfir Húnaþing vestra, Blönduósbær, Skagabyggð,
Sveitarfélagið Skagaströnd og Húnavatnshrepp.
Samningurinn er gerður um almenna dýralæknaþjónustu, sbr. 13. gr. laga nr. 66/1998 um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr
og reglugerð nr. 846/2011 um dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum. Stefán Friðriksson er svæðinu kunnugur og hefur áður
starfað sem héraðsdýralæknir í Austur-Húnaþingsumdæmi með aðsetur á Blönduósi.
Með þessum samningi hefur Matvælastofnun lokið við að gera þjónustusamninga við dýralækna á öllum
þjónustusvæðum skv. reglugerð nr. 846/2011. Þar með er mikilvægum áfanga náð við að tryggja
dýralæknaþjónustu í dreifðum byggðum landsins.
heimild: www.mast.is