Flýtilyklar
16. fundur hreppsnefndar
Miðvikudaginn 2. ágúst 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum. kl. 13.00. Björn Magnússon setti
fundinn og stjórnaði honum. Þorleifur Ingvarsson ritaði fundargerð. Ólöf Birna Björnsdóttir hafði boðað forföll og sat Birgitta H.
Halldórsdóttir fundinn í hennar stað. Mæting á fundinn að öðru leiti samkvæmt undirskriftum.
dagskrá.
1. Ráðningarsamningur
sveitarstjóra
2. Erindisbréf nefnda
3. Deiliskipulag
4. Fráveitumál
5. Viðhald fjallvega í
sveitarfélaginu
6. Umsókn um gisti- og veitingarleyfi
7. Beiðni um skólavist utan
skólahverfis
8. Erindi ritað í
trúnaðarbók
9. Fundargerðir
a) Byggingarnefndar frá
08.07.
b) Hérarsnefndar
frá 05.06.
c)
Héraðsráðs frá 12.04. og 17.07
d) Aðalfundur
Félagsþjónustu A-Hún frá 05.07.
e) Atvinnumálanefndar
Húnavatnshrepps frá 19.07.
10. Önnur mál.
1. Ráðningarsamningur sveitarstjóra.
Björn kynnti uppkast að ráðningarsamningi sem gerður hefur verið við Jens Pétur Jensen vegna starfs
sveitarstjóra Húnavatnshrepps. Samningurinn var ræddur og lítilsháttar breytingar gerðar, síðan var samningurinn borinn upp og samþykktur
með fimm atkvæðum og oddvita falið að undirrita samningin fyrir hönd Húnavatnshrepps.
Gert er ráð fyrir að Jens Pétur hefji störf í byrjun september.
2. Erindisbréf nefnda.
Erindisbréf fyrir eftirtaldar nefndir á vegum sveitarfélagsins lágu fyrir fundinum. Fræðslunefnd, fjallskilanefndir,
atvinnumálanefnd, félagsmálanefnd og samgöngu og fjarskiptanefnd.
Erindisbréfin voru rædd og síðan borin upp og samþykkt samhljóða.
3. Deiliskipulag.
Fyrirliggur deiliskipulagsuppdráttur dags. 31.07.2006 nr. 7330/DSK- Steinholt.S01, af landssvæði við Steinholt hjá
Húnavallaskóla, unnin af verkfræðistofunni Stoð á Sauðárkróki.
Eftir ítarlega umræður var eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða.
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps samþykkir fyrirliggjandi skipulagstillögu með fimm tilgreindum lóðum auk
íbúðarhúss sem áður hefur verið reist á skipulagssvæðinu. Deiliskipulagstillagan verður auglýst eins og kveðið er á
um í skipulagslögum.
Björn kynnti verðtilboð í liðlega 20 rotþrær og siturlagnir, frá tveim aðilum.
Miklar umræður urðu um tilboðin og einnig um framhald verkefnisins.
Ákveðið var að vinna að málinu áfram.
5. Viðhald fjallvega í sveitarfélaginu
Birni Magússyni og Birgi Ingþórssyni var falið að ákveða með nýtingu á þeim fjármunum sem
vilyrði er fyrir úr fjallvegasjóði til viðhalds á Vagla-, Grímstunguheiðar- og Haukagilsheiðavega.
6. Umsókn um gisti- og veitingaleyfi.
Umsókn um gisti- og veitingaleyfi á Hveravöllum lá fyrir fundinum.
Umsækjandi er Hveravallafélagið ehf. og ábyrðarmaður Björn Þór Kristjánsson.
Hreppsnefnd samþykkti samhljóða að veita umbeðið leyfi, fyrir sitt leiti.
7. Beiðni um skólavist utan skólahverfis.
Erindi bókað í trúnaðarbók.
8. Erindi ritað í trúnaðarbók.
Erindi bókað í trúnaðarbók.
9. Fundargerðir.
a) Byggingarnefndar frá 08.07.
Fundargerð byggingarnefndar frá 08.07 var tekin til afgreiðslu. Fundargerðinn er í 5 liðum.
Fundargerðin var send í tölvupósti til hreppsnefndarmanna og engar athugasemdir bárust og er hún því
samþykkt athugasemdalaust.
b) Héraðsnefndar frá 05.07.
Lögð fram til kynningar.
c) Héraðsráðs frá 12.04 og 17.07.
Lagðar fram til kynningar.
d) Aðalfundur Félagsþjónustu A-Hún frá 5.07.
Lögð fram til kynningar
e) Atvinnumálanefndar Húnavatnshrepps frá 19.07.
Lögð fram til kynningar.
10. Önnur mál.
a) Kynnt var erindi frá Félagsmálaráðuneytinu varðandi málefni
innflytjenda þar er óskað eftir afstöðu sveitarfélaganna varðandi ýmsa hluti þeim tengdum.
Þorleifi og Birni var falið að svara erindinu.
b) Kynnt var erindi frá Umhverfisráðuneytinu varðandi endurskoðun á gildandi
skipulags- og byggingarlögum.
c) Kynnt var boðbréf til hreppsnefndarmanna á Hólahátíð sem haldin
verður11-13 ágúst nk.
d) Tryggvi kynnti fundargerð Ráðgjafanefndar um friðlandið í
Guðlaugstungum frá 21.07. sl.
e) Birgir vakti máls á nauðsynlegum lagfæringum á bragga við
Öldumóðuskála
og hesthúsi við Fljótsdragaskála. Samþykkt var að vinna að málinu.
f) Jón ræddi um nauðsyn á endurskipulagningu á nýtingu á dilkum
við skilaréttir
í sveitarfélaginu.Samþykkt var að fjallskilanefndir vinni að málinu.
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 16.00.
Björn Magnússon
Jón Gíslason
Jóhanna E Pálmadóttir
Gróa M Lárusdóttir
Tryggvi Jónsson
Birgir Ingþórsson
Birgitta H.
Halldórsdóttir
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 21.08.2006
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni