Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

15. fundur hreppsnefndar

 
 
      Miðvikudagskvöldið 19. júlí  2006  var haldinn hreppsnefndarfundar að Húnavöllum.  Björn Magnússon oddviti setti fundinn, en allir aðalmenn voru mættir.
 
Til fundarins var boðað fyrst og fremst vegna ráðningar sveitarstjóra.
Umsækjendur voru upphaflega átta, en einn dró síðar umsókn sína til baka.
Húnavatnshreppur leitaði eftir ráðgjöf um val umsækjenda hjá Glax- viðskiptaráðgjöf og fór oddviti í upphafi fundar yfir gögn frá þeim um mat á umsækjendum, sem byggt var á ferilskrá og viðræðum við nokkra þeirra.
Eftir langar og ítarlegar umræður lagði oddviti til að hann og varaoddviti semdu við Jens Pétur Jensen, sem sveitarstjóra Húnavatnshrepps.
Og var það samþykkt með 5 atkvæðum.
E- listinn vildi semja við Róbert T Árnason, og jafnframt gerði E- listinn athugasemd við að Einar Kolbeinsson skyldi ekki tekinn í viðtal vegna starfs sveitarstjóra. E- listinn furðar sig á þeim skilaboðum sem ungu menntuðu heimafólki eru send.
A- listi lét bóka að Einar Kolbeinsson hefði litla starfsreynslu og ekki haldgóða stjórnunarreynslu, sem er nauðsynleg í starfi sveitarstjóra.
 
Önnur mál.
 
Ákveðið var að óska eftir framlengingu á samningi starfsmanns,
Þorleifi Ingvarssyni til áramóta.
 
Fleira ekki gert, fundi slitið.
 
 
Tryggvi Jónsson, (sign)
Jóhanna E. Pálmadóttir, (sign)
Ólöf Birna Björnsdóttir, (sign)
Gróa M. Lárusdóttir, (sign)
Birgir Ingþórsson, (sign)
Björn Magnússon, (sign)
Jón Gíslason, (sign)
 
                                                     
 
 
 
 
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 18.08.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 13
Samtals: 184981

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning