Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

13. fundur hreppsnefndar

 
 
 
Þriðjudaginn 20. júní  2006 kom  hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum. kl. 13.00. Björn Magnússon  setti fundinn og stjórnaði honum. Þorleifur Ingvarsson ritaði fundargerð. Mæting á fundinn var samkvæmt undirskriftum.  Björn lagði til að bætt verði á dagskrá
Lið 6.  Beiðni um skólavist utan skólahverfis og var það samþykkt samhljóða.
 
                                     dagskrá.
                       
1.       Samþykktir Húnavatnshrepps, síðari umræða.
2.       Erindisbréf nefnda.
3.       Nefndakjör.
4.       Styrkbeiðni.
5.       Erindi Hjálmars Ólafssonar.
6.       Beiðni um skólavist utan skólahverfis.
7.       Önnur mál.
 
 
 
1.      Samþykktir Húnavatnshrepps.
Breytingar á samþykktum Húnavatnshrepps voru teknar til síðari umræðu. Björn og Ólöf Birna gerðu grein fyrir  breytingum á samþykktunum.
Eftir töluverðar umræður voru samþykktirnar bornar upp og samþykktar með öllum atkvæðum greiddum.
 
2.      Erindisbréf nefnda.
Vegna breytinga á nefndaskipan samkvæmt samþykktum Húnavatnshrepps þarf að aðlaga erindisbréf  nefnda sveitarfélagsins. Birni og Þorleifi var falið að útbúa uppkast að erindisbréfum og senda hreppsnefndarmönnum.
 
3.      Nefndakjör.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt með öllum atkvæðum. Hætti nefndarmaður
( aðal eða varamenn) störfum á kjörtímabilinu, þá tilnefni sá listi sem tilnefndi hann í upphafinýjan nefndarmann í hans stað.
 
a)  Yfirkjörstjórn.
 Kosningu hlutu. Erla Hafsteinsdóttir, Gréta Björnsdóttir og Ragnar Bjarnason
 Til vara. Gísli Hólm Geirsson, Þórunn Magnúsdóttir og  Guðmundur Valtýsson
     
b)   Undirkjörstjórnir fyrir kjördeildir:
                       
bb) Húnavöllum.
Kosningu hlutu. Stefán Á. Jónsson, Helga Thoroddsen og  Nanna Guðmannsdóttir.
Til vara. Gerður Garðarsdóttir, Arna Ævarsdóttir og  Hreinn Magnússon.
                       
bbb)  Húnaveri.
Kosningu hlutu. Friðgeir Jónasson, Kristín Pálsdóttir og Hafdís Vilhjálmsdóttir.
                Til vara: Sigríður Þorleifsdóttir, Jóhanna Halldórsdóttir og Þorbjörg Bjarnadóttir.
                      
bbbb) Vatnsdal.
                Kosningu hlutu. Jón Gíslason Hofi, Lúther Olgeirsson og Sigrún Grímsdóttir.
Varamenn. Sigurður Ólafsson, Hólmgeir Pálsson og Hjálmar Ólafsson.
  
c)  Félagsmálanefnd.
        Kosningu hlutu. Magdalena M Einarsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Ingibjörg Jónsdóttir 
Til vara Hrafn Þórisson, Sigrún Grímsdóttir og Renate Janine Kemnitz.
 
d)  Atvinnumálanefnd.  
Kosningu hlutu.  Gunnar Kristjánsson,  Þóra G Þórsdóttir og  Líney Árnadóttir.
Til vara. Páll Stefánsson, Haukur Suska Garðarsson og  Jóhanna Magnúsdóttir Ártúnum.
         
  e)  Menningarmála-, íþrótta- og æskulýðsnefnd.
 Kosningu hlutu. Jóhanna Pálmadóttir, Sigþrúður Friðriksdóttir og Ingibjörg S.Sigurðardóttir.
Til vara. Pálmi Þór Ingimarsson, Helgi Páll Gíslason og Ásmundur Einarsson.
 
 f)  Jafnréttisnefnd.
Kosningu hlutu. Haraldur Kristinsson, Sigríður Þorleifsdóttir og Sigurbjörg Jónsdóttir.
Til vara. Óskar Guðmundsson, Grímur Guðmundsson og  Kristín LÁrnadóttir.           
 
g)  Samgöngu- og fjarskiptanefnd. 
  Kosningu hlutu. Ægir Sigurgeirsson, Björn Þór Kristjánsson og Einar Kolbeinsson.
Til vara. Kristján Birgisson, Sigurður Magnússon og Sigurður Ólafsson.
 
h) Hússtjórnir.
hh)Húnavers.    
                Kosningu hlutu. Pétur Pétursson, Björn Magnússon  og  Guðmunda S Guðmundsdóttir.
                    Til vara. Tryggvi Jónsson, Kristín Pálsdóttir og  Gróa MLárusdóttir. 
      
                hhh)Dalsmynnis.
Kosningu hlutu. Guðrún Sigurjónsdóttir, Júlíus Óskarsson og Sigurður Árnason.
Til vara. Ingibjörn Sigurjónsson, Þóroddur Þorsteinsson og Sveinfríður U Halldórsdóttir.
 
4.      Styrkbeiðni.
Fyrir fundinum lá beiðni  um ferðastyrk frá Jóhönnu Guðrúnu Magnúsdóttur vegna æfingaferða með glímulandsliði  Íslands. Samþykkt var að veita 25.000 kr. styrk. Jafnframt sendir hreppsnefnd Jóhönnu Guðrún baráttukveðjur.
 
5.      Erindi Hjálmars Ólafssonar.
Fyrir fundinum lá erindi frá Hjálmari Ólafssyni, Kárdalstungu varðandi ástand vegarins á afleggjaranum frá Vatnsdalsvegi að Kárdalstungu svo og á brú á afleggjaranum.
Erindinu var vísað til samgöngunefndar Héraðsnefndar A-Hún.
 
Einnig lá fyrir fundinum erindi frá Hjálmari um uppsetningu á nýju ristahliði á heimkeyrslunni að Kárdalstungu. Samþykkt var að Húnavatnshreppur styrki uppsetningu á ristahliði um 100.000,- kr. að uppfylltum kröfum Vegagerðarinnar um gerð og uppsetningu.
 
6.      Beiðni um skólavist utan skólahverfis.
Afgreiðsla bókuð í trúnaðarbók.
 
7.      Önnur mál.
a)    Björn lagði fram erindi frá Pétri Péturssyni um vínveitingarleyfi í Flóðvangi í        Vatnsdal nú í sumar.
        Erindið var samþykkt að uppfylltum skilyrðum þar um.
b)    Lagt fram til kynningar fundargerð frá Fjallskiladeild Auðkúluheiðar frá 15.06.
c)    Lagt fram bréf frá Landbótasjóði Búnaðarfélags Svínavatnshrepps.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
d)    Lagt fram bréf  frá tímaritinu Sveitarstjórnarmál.
e)    Lögð var fram til kynningar greinargerð og fyrstu drög að deiluskipulagi við Steinholt.
 
Ákveðið var að næsti reglulegi fundur hreppsnefndar verði á Húnavöllum
7. júlí nk. kl.13.00
 
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 15.30.
                                               
Björn Magnússon
Jón Gíslason
Jóhanna E Pálmadóttir
Ólöf Birna Björnsdóttir
Gróa M Lárusdóttir
Tryggvi Jónsson
Birgir Ingþórsson
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 18.08.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 13
Samtals: 184981

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning