Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

12. fundur hreppsnefndar


 
Mánudaginn 12. júní  2006 kom nýkjörin hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum. kl. 13.20. Björn Magnússon nýkjörinn oddviti setti fundinn og stjórnaði honum. Þorleifur Ingvarsson ritaði fundargerð. Mæting á fundinn var samkvæmt undirskriftum.
 
                                      dagskrá.
                       
1.       Kosning varaoddvita.
2.       Samþykktir Húnavatnshrepps.
3.       Ráðning sveitarstjóra.
4.       Byggðasamlag Húnavallaskóla.
5.       Nefndakjör.
6.       Önnur mál.
 
 
1.     Kosning varaoddvita til eins árs.
Kjörinn var Jón Gíslason með 5 atkvæðum. Ólöf Birna Björnsdóttir hlaut tvö atkvæði.
 
2.     Samþykktir Húnavatnshrepps.
Breytingar á samþykktum Húnavatnshrepps voru teknar til fyrri umræðu. Vegna sameiningar Húnavatns- og Áshrepps er nauðsynlegt að aðlaga samþykktirnar að nýju sveitarfélagi og  Birni og Ólöfu Birnu  var falið að vinna þá vinnu og leggja fyrir næsta fund.
Rætt var um fyrirkomulag kjördeilda í sveitarfélaginu. Eftir nokkrar umræður lagði Tryggvi til að í sveitarfélaginu verði þrjár kjördeildir, á Húnavöllum, í Húnaveri og í Vatnsdal. Tillagan var borin upp og  samþykkt með 5 atkvæðum.
 
3.     Ráðning sveitarstjóra.
Samþykkt var að auglýsa eftir umsóknum um starf  sveitarstjóra Húnavatnshrepps,
umsóknarfrestur  verður til 30 júní nk.
 
4.     Byggðasamlag Húnavallaskóla.
Rætt var um fyrirkomulag á rekstri Húnavallaskóla. Samþykkt var að Byggðasamlag Húnavallaskóla verði rekið til næstu áramóta og að sveitarstjórn fari með stjórn þess.
Erindi sem borist hafa Byggðasamlagi Húnavallaskóla  voru kynnt fundarmönnum og samþykkt að vísa þeim til umsagnar fræðslunefndar Húnavatnshrepps einnig umsóknum um starf skólaliða næsta skólaár.
Varðandi sundlaugargæslu í Húnavallalaug í sumar var ákveðið að ganga að tilboði  Ferðaþjónustu Húnavatnssýslu um að sjá alfarið um sundlaugina gegn ákveðinni greiðslu.
 
5.      Nefndakjör.
a)    Fulltrúa á aðalfund SSNV.
Aðalmaður Björn Magnússon. Til vara Jóhanna Pálmadóttir.
b)    Fulltrúa á þing  Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aðalmaður. Björn Magnússon. Til vara. Jón Gíslason.
c)    Fræðslunefnd.
Aðalmenn. Ægir Sigurgeirsson, Pétur Pétursson, Kristín Rós Sigurðardóttir Þóra Sverrisdóttir, og Eline Schrijver.
Til vara. Maríanna Þorgrímsdóttir, Björn Þór Kristjánsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Sveinfríður U Halldórsdóttir og Fanney Magnúsdóttir.
d)    Fjallskilanefnd  Grímstungu og Haukagilsheiðar.
Aðalmenn. Einar Svavarsson, Árni Bragason og Birgir Ingþórsson.
Til vara. Magnús Pétursson,  Birgir Gestsson og Egill Herbertsson.
e)    Fjallskilanefnd Auðkúluheiðar
Aðalmenn. Jón Gíslason, Gísli Geirsson og Sigurður Ingi Guðmundsson.
Til vara. Júlíus Óskarsson, Jón Kristofer Sigmarsson og Sigurður Erlendsson.
f)     Fjallskilanefnd Eyvindarstaðarheiðar.
Aðalmenn. Erla Hafsteinsdóttir, Óskar Guðmundsson og  Jakob Sigurjónsson.
Til vara. Pétur Pétursson, Þór Sævarsson og Guðmundur R Halldórsson.
g)    Skoðunarmenn
Aðalmenn. Þóra Sverrisdóttir og Halldór Guðmundsson.
Til vara. Sigríður Hermannsdóttir og Ragnar Bjarnason.
h)    Héraðsnefnd.
Aðalmenn. Tryggvi Jónsson, Jóhanna E Pálmadóttir og Ólöf Birna Björnsdóttir.
Til vara. Björn Magnússon, Gróa M Lárusdóttir og Birgir Ingþórsson.
i)      Byggingarnefnd.
Aðalmenn. Kristján Jónsson, Fanney Magnúsdóttir og Jóhann Guðmundsson.
Til vara. Hjálmar Ólafsson, Ragnar Bjarnason og  Helga Thoroddsen.
 
6.      Önnur mál.
a)    Björn lagði fram til kynningar tilboð frá Sorphirðu Vilhelms Harðarsonar í sorphirðu fyrir sveitarfélagið.
b)    Tekin var fyrir styrkbeiðni frá Ungmennafélaginu Geislum. Samþykkt var að verða við erindinu og greiða styrk sem samsvarar 1000 kr. á íbúa á starfssvæði félagsins. Jafnframt var samþykkt að samræma styrkveitingu til  Ungmennafélags Bólstaðarhlíðarhrepps.
 
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 15.30.
                                               
Björn Magnússon
Jón Gíslason
Jóhanna E. Pálmadóttir
Ólöf Birna Björnsdóttir
Gróa M. Lárusdóttir
Tryggvi Jónsson
Birgir Ingþórsson 
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 18.08.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 40
Samtals: 249778

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning