Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

11. fundur hreppsnefndar


Miðvikudaginn 7. júní 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00. Björn Magnússon setti fundinnogstjórnaði honum. Þorleifur Ingvarsson  ritaði fundargerð. Kristján Jónasson endurskoðandi mætti á fundinn svo ogskoðunarmennhreppsins þau Þóra Sverrisdóttir og Halldór Guðmundsson. Mæting á fundinn að öðru leiti  samkvæmtundirskriftum.

 

                                    dagskrá.


    1. Ársreikningar  Bólstaðarhlíðar-, Sveinsstaða-, Svínavatns-,
        og Torfalækjarhrepps  2005,síðariumræða.
    2. Umsókn um vínveitingaleyfi.
    3. Umsókn um ristahlið
    4.      Fundargerðir
        a)      Héraðsnefndar Austur- Húnvetninga frá 8. maí.
        b)      Stjórnarfunda SSNV frá 10. og 25. apríl.
        c)      Stjórnar Norðurá bs  frá 11.april

    5 .  Önnur mál

 

1.      Ársreikningar  Bólstaðarhlíðar-, Sveinsstaða-, Svínavatns-, og Torfalækjarhrepps  2005,síðariumræða.

Ársreikningar hreppanna voru  teknir til síðari umræðu. Skoðunarmenn  sveitarfélagsins þau Þóra og Halldórgerðu grein fyrir vinnu við yfirferð á bókhaldi hreppanna og komu með ýmsar athugasemdir þar að lútandi. Þá fórKristjánJónasson endurskoðandi, yfir nokkur atriði varðandi uppgjör hreppanna og lagði fram og útskýrði samantekt með samanburði unnumúrefnahagsreikningum þeirra.

 Eftir nokkrar umræður voru reikningarnir voru síðan bornir upp og samþykktir samhljóða með öllum greiddum atkvæðum.

Að svo loknu yfirgáfu Kristján, Þóra og Halldór fundinn.

 

2.      Umsókn um vínveitingarleyfi.

Tekin var fyrir umsókn um vínveitingarleyfi frá Ferðaþjónustu Húnavatnssýslu ehf vegna reksturs Hótels Húnavalla. Meðfylgjandivarljósrit af gisti og veitingaleyfi vegna fyrirhugaðrar starfsemi á Húnavöllum.

Hreppsnefnd Húnavatnshrepps samþykkir að veita  leyfi til vínveitinga  þann tíma sem hótelrekstur varir í skólanumáyfirstandandi sumri.

 

3.      Umsókn um ristahlið.

Fyrir fundinum lá erindi frá Mævu Marline Urbschat um styrk vegna uppsetningu á ristahliði á Litla Búrfelli. Erindið var samþykktaðuppfylltum skilyrðum sem Vegagerðin setur um gerð og uppsetningu ristahliða.

 

4.      Fundargerðir.

    a)      Héraðsnefndar frá 8. maí
    Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

    b)      Stjórnarfunda SSNV frá 10. og 25. apríl
    Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

    c)      Stjórnar Norðurá bs. frá 11 apríl.
    Fundargerðin var lögð fram til kynningar

5.      Önnur mál.

a)      Tryggvi og Birgir gerði grein  fyrir tillögum varðandi refavinnslu í sumar.  Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélaginu sé skipt í leitarsvæði og skriflegur samningur verði     gerðurvið ákvðna aðila um hvert svæði. Þar verði samið um fastan tímafjölda á hverju         svæði ogveiðimönnum gert að skila inn vinnuskýrslu og staðsetja hvert greni með g. p.s.     punktum. Jafnframt kynntu Tryggvi og Birgir tillögu aðtímafjölda og verðskrá. Leitað verði     í  upphafi til sömu aðila og verið hafi í refavinnslunni undanfarin ár.Minkavinnsla verði         með sama sniði og undanfarin ár

Eftir töluverðar umræður var samþykkt að fara að tillögu Tryggva og Birgis til reynslu eitt ár.
   

b)      Birgir vakti máls á stöðu mála hvað varðar Skúlahorn á Blönduósi og  urðuí framhaldinu miklar umræður um þau mál svo og eignarhluti sveitarfélagsins í ýmsum fyrirtækjum.

 

Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 17.00
                                              

                      

Björn Magnússon

Jóhanna Pálmadóttir

Ólöf Birna Björnsdóttir

Tryggvi Jónsson

Jón Gíslason

Birgir Ingþórsson

BrynjólfurFriðriksson.                                                                   

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 18.08.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 40
Samtals: 249778

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning