Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

10.fundur hreppsnefndar

 

Mánudaginn 15. maí 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00. Björn Magnússon setti fundinn og stjórnaði honum. Þorleifur Ingvarsson og Jóhanna E. Pálmadóttir rituðu fundargerð. Brynjólfur Friðriksson hafði boðað forföll og Birgitta H Halldórsdóttir sat fundinn í hans stað. Mæting á fundinn að öðru leiti  samkvæmt undirskriftum.

Björn lagði til að umsókn um vínveitingarleyfi í Áfanga verði bætt á dagskrána undir liðnum önnur mál, og var það samþykkt samhljóða.
 
                                    dagskrá.
 
  1. Kjörskrárstofn vegna sveitarstjórnarkosninga.
  2. Ársreikningar Bólstaðarhlíðar-, Sveinsstaða-, Svínavatns-, og Torfalækjarhrepps 2005, fyrri umræða.
  3. Heitavatnsleit á Reykjum.
  4. Erindi frá umhverfisstofnun, vegna vega og vegslóða innan sveitarfélagsins.
  5. Jafnréttisáætlun Húnavatnshrepps, síðari umræða.
  6. Erindi frá félagsmála- og fræðslunefnd Húnavatnshrepps.
  7. Heimasíða.
  8. Bréf Guðmundar R Halldórssonar og Ragnheiðar Ólafsdóttur Finnstungu.
  9. Bréf Þorleifs Ingvarssonar.
  10. Styrkbeiðni frá unglingadeild Björgunarfélagsins Blöndu.
  11. Styrkbeiðni frá Samkórnum Björk.
  12. Fundargerðir
    1. Byggingar- og umhverfisnefndar Húnavatnshrepps frá 23. 04.
    2. Önnur mál
 
 
1.      Kjörskrárstofn vegna sveitarstjórnarkosninga..

Samþykkt var að fela starfsmönnum á skrifstofu hreppsins að yfirfara kjörskrárstofninn og oddvita var falið að undirrita hann og leggja  fram sem kjörskrá við sveitarstjórnarkosningar 27. maí nk.

Skipting milli kjördeilda í Húnaveri og Húnavöllum verður um Blöndu að öðru leiti en því að Blöndudalur að vestan tilheyrir kjördeild í Húnaveri.

 
2.      Ársreikningar Bólstaðarhlíðar-, Sveinsstaða-, Svínavatns-, og Torfalækjarhrepps 2005, fyrri umræða.
Ársreikningar hreppana voru lagðir fram og teknir til fyrri umræðu.
Síðan voru reikningarnir afgreiddir til síðari umræðu.
 
 
3.      Heitavatnsleit á Reykjum.

Björn kynnti niðurstöður frá fundi sem hann og Ólöf Birna áttu við Hauk Ásgeirsson hjá Rarik. Þorleifi og Birni var falið að gera uppkast að bréfi og senda út til hreppsnefndarmanna til yfirlestrar. Óskað verði eftir formlegum viðræðum við stjórn Rarik um að tryggja íbúum Húnavatnshrepps ákveðið magn af vatni sem kemur upp við þessa framkvæmd.

Samþykkt samhljóða.
 
Þorleifur vék af fundi vegna anna og Jóhanna tók við ritun fundargerðar
 
4.      Erindi frá umhverfisstofnun, vegna vega og vegslóða innan sveitarfélagsins.

Tekið var fyrir erindi frá Umhverfisstofnun varðandi vegi og vegslóða í sveitarfélaginu. Ákveðið var að hafa samband við Umhverfisstofun og í samráði við heimamenn verði farið yfir málið. Þorleifi og Birni verði falið að fylgja málinu eftir. Samþykkt samhljóða.

 
5.      Jafnréttisáætlun Húnavatnshrepps, síðari umræða.
Jafnréttisáætlun Húnavatnshrepps var tekin til síðari umræðu og var samþykkt samhljóða.
 
 
6.      Erindi frá félagsmála- og fræðslunefnd Húnavatnshrepps.

Félagsmála- og fræðslunefnd gerði könnun meðal íbúa sveitarfélagsins 60 ára og eldri, varðandi áhuga viðkomandi á ýmiskonar félagsstarfi.

Félagsmála- og fræðslunefnd hefur einnig gert könnun meðal foreldra barna 0-5 ára varðandi leikskólamál. Niðurstaða úr þessum tveimur könnunum voru lagðar fram fyrir fundinn og kynntar.

 
7.      Heimasíða.
Nokkur reynsla er nú komin á heimasíðu Húnavatnshrepps.
Almennt hefur henni verið vel tekið, ákveðið var að gefa henni frekari tíma til að þróast.
 
8.      Bréf Guðmundar R Halldórssonar og Ragnheiðar Ólafsdóttur Finnstungu.

Fyrir fundinum lá tölvubréf frá Guðmundi R Halldórssyni og Ragnheiði Ólafsdóttur varðandi ristahlið á nýja heimreið að bænum. Samþykkt var að veita 100.000.- styrk til ristarhliðs á Finnstunguafleggjara á móti kemur að farið verði að kröfum Vegagerðarinnar um uppsetningu og frágangs ristarhliðsins.

 
9.      Bréf Þorleifs Ingvarssonar.

Fyrir fundinum lá bréf frá Þorleifi Ingvarssyni varðandi bókun E-lista frá síðasta fundi hreppsnefndar. Í bréfinu kom fram að Þorleifur taldi að sér væri vegið með bókun á síðasta fundi hreppsnefndar. Vildi hann koma því á framfæri að á honum hefði verið brotið með því að koma með undirbúna bókun heiman frá án þess að könnuð hefði verið sannleiksgildi ásakananna. Sem reyndust ekki réttar.

Engar umræður voru.
 
 
10. Styrkbeiðni unglingadeild Björgunarfélagsins Blöndu.

Fyrir fundinum lá styrkbeiðni frá unglingadeild Björgunarfélagsins Blöndu. Unglingum í 8.-10 bekk er boðið upp á taka þátt í unglingastarfi Björgunarfélagsins Blöndu. Ákveðið var að styrkja unglingastarfið um 25.000.- Samþykkt samhljóða.

 
11. Styrkbeiðni frá Samkórnum Björk.

Fyrir fundinum lá beiðni frá Samkórnum Björk um fjárstyrk og var samþykkt samhljóða að styrkja kórinn um 100.000.- vegna starfssemi kórsins.

 
 
12. Fundargerðir.
a)      Byggingar- og umhverfisnefnd Húnavatnshrepps frá 23.04.06
Fundargerðin tekin til afgreiðslu og samþykkt samhljóða með öllum atkvæðum.
 
13. Önnur mál.

a.                   Fyrir lá nýkomið bréf frá Kristjáni Birgissyni. Oddviti hafði í upphafi fundar lagt það fram og fundurinn samþykkti að taka það undir önnur mál. Í bréfi þessu kom fram ósk um vínveitingaleyfi í Áfanga. Ákveðið var að veita vínveitingaleyfi fyrir árið 2006.

b.                  Taxti var ákveðinn í sambandi við vínveitingaleyfi.
Vínveitingaleyfi til skamms tíma verður         3.000.-
Vínveitingaleyfi til eins árs verður                10.000.-

c.                   Tryggvi og Birgir gerðu grein fyrir þeim upplýsingum sem      þeir öfluðu í samtölum sínum við veiðimenn sem sinnt hafa tófu- og minkaveiðum á svæðinu. Þeir mun vinna áfram í málinu og samræma upplýsingarnar.

 
 
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 15.30
                                               
                       
Björn Magnússon
Jóhanna Pálmadóttir
Ólöf Birna Björnsdóttir
Tryggvi Jónsson
Jón Gíslason
Birgir Ingþórsson
Birgitta H Halldórsdóttir.                                                                
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 28.06.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 13
Samtals: 184981

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning