Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

08. fundur hreppsnefndar

 

Miðvikudaginn 5.apríl 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00. Björn Magnússon setti fundinn og stjórnaði honum. Þorleifur Ingvarsson ritaði fundargjörð.  Mæting á fundinn að öðru leiti  samkvæmt undirskriftum.

 

      Dagskrá.

 

  1. Dómur Hæstaréttar vegna forkaupsréttar sveitarfélagsins að jörðinni Ásum
  2. Heimasíða og merki sveitarfélagsins
  3. Viðbygging við Galtarárskála.
  4. Vaxtarsamningur Norðurlandi vestra
  5. Samgöngumál.
  6. Umsögn um þingsályktun um átaksverkefni í ferðamálum í Norðvesturkjördæmi
  7. Bréf samvinnunefndar um miðhálendi Íslands.
  8. Kosning  fulltrúa á aðalfund heiðadeildar veiðfélags Blöndu og Svartár
  9. Tilnefning í stjórn Auðkúluheiðar ehf.
  10. Tilnefndur fulltrúi á aðalfund veiðifélags Blöndu og Svartár
  11. Fundargerðir

a)      Stjórnar Dalsmynnis frá 23.03.2006

b)      Stjórnar SSNV frá 14.03 2006.

12.  Önnur mál.

 

  1. Dómur Hæstaréttar vegna forkaupsréttar sveitarfélagsins að jörðinni Ásum

Dómur Hæstaréttar frá 16. mars 2006 í máli Húnavatnshrepps ( áður Svínavatnshrepps) til staðfestingar á forkaupsrétti sveitarfélagsins á jörðinni Ásum lá fyrir fundinum.

Dómurinn hafnar kröfu Húnavatnshrepps og dæmir hreppinn til greiðslu málskostnaðar.

Dómskjölum var dreift til kynningar. Mál nr. 440/2005

Undir þessum lið var einnig kynnt bréf frá Má Péturssyni lögmanni.

 

  1. Heimasíða og merki sveitarfélagsins

Ákveðið hefur verið að opna heimasíðu Húnavatnshrepps  formlega  kl. 16.00.
þann 5. apríl.

Merki með ísbirni og geislum var einróma valið sem merki Húnavatnshrepps enda hafði það hlotið afgerandi stuðning í könnun á netinu.

 

  1. Viðbygging við Galtarárskála.

Tilboð í viðbyggingu við Galtarárskála voru opnuð 29 mars. sl. hjá Stoð ehf.
Fram kom að lægsta tilboð hafi komið frá Krák ehf, tæpar 12 millj. kr.  eða
103,7 % af kostnaðaráætlun og var því tekið. Eyvindarstaðarheiði ehf mun fjármagna verkið með 8 milljóna kr. láni og samþykkt var samhljóða að Húnavatnshreppur greiði 5/17 af því sem útaf stendur.

 

  1. Vaxtarsamningur Norðurlandi vestra

Vinna við vaxtarsamning fyrir Norðurland vestra er í gangi og gerði Björn grein fyrir kynningarfundum um þau mál.
Töluverðar umræður urðu um atvinnumál á svæðinu.

 

  1. Samgöngumál.

Kynnt var afrit af bréfi undirritað af eigendum jarðanna Litlu Giljár, Brekku og Syðri Brekku til Leiðar ehf, þar sem mótmælt er harðlega áformum um lagningu nýs vegar um lönd þeirra.

Björn gerði grein fyrir viðræðum við Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra
um samgöngumál í héraðinu, einnig gerði Björn grein fyrir samtölum við forsvarsmenn Vegagerðarinnar á  Norðurlandi vestra og fyrirhugaðan fund með þeim.

Rætt var um ástand og horfur í vega- og fjarskiptamálum í héraðinu.

 

6.  Umsögn um þingsályktun um átaksverkefni í ferðamálum í Norðvesturkjördæmi

Fyrir fundinum lá erindi frá Samgöngunefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um þingsályktun um átaksverkefni í ferðamálum í Norðvestur-
kjördæmi.

                Málið var rætt og einróma stuðningi  lýst við þingsályktunina.

 

7.     Bréf samvinnunefndar um miðhálendi Íslands.

Fyrir fundinum lá erindi frá Samvinnunefnd um miðhálendi Ísland varðandi breytingu á svæðisskipulagi miðhálendis. Breytingin er tilkomin vegna fyrirhugaðrar hálendismiðstöðvar við Skálpanes sunnan Hvítárvatns við Langjökul, innan hreppamarka Bláskógarbyggðar.

Erindið var samþykkt athugasemdalaust.

 

8.     Kosning  fulltrúa á aðalfund heiðadeildar veiðfélags Blöndu og Svartár

Málinu var frestað.

 

9.    Tilnefning í stjórn Auðkúluheiðar ehf.

Tilnefnd í stjórn Auðkúlaheiðar ehf. Frá A-lista Jón Gíslason og Jóhanna Pálmadóttir til vara Gísli Geirsson og Júlíus Óskarsson.
Frá E-lista Grímur Guðmundsson til vara  Þorsteinn Þorsteinsson

10.  Tilnefndur fulltrúi á aðalfund veiðifélags Blöndu og Svartár

Ekki var tilnefnt á fundinn.

 

11.  Fundargerðir

a.      Stjórnar Dalsmynnis frá 23.03.2006.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

b.      Stjórnar SSNV frá 14.03.2006.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

 

12.  Önnur mál.

a.     Tekin var fyrir umsókn frá Ferðaþjónustu Húnavatnsýslu um gisti og  veitingaleyfi á Húnavöllum á komandi sumri.

         Samþykkt samhljóða.

b.     Tekin var fyrir umsókn frá Erlendi Eysteinssyni um gistileyfi í sumarhúsum á  Stóru Giljá.

 Erindið var samþykkt samhljóða.

c.       Ólöf Birna lagði fram tillögu frá E-lista um að hreppsnefnd gangist fyrir íbúahátíð. Samþykkt var að vísa tillögunni til menningarmála-
nefndar.

Einnig óskaði Ólöf Birna eftir yfirliti um eignalega stöðu sveitar-
félagsins.
Fram kom að vinna við uppgjör aðildarhreppa Húnavatnshrepps er á lokastigi þannig að staðan muni fljótlega liggja fyrir.

 

Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið kl. 14.40

 

Björn Magnússon

Jóhanna Pálmadóttir

Ólöf Birna Björnsdóttir

Jón Gíslason

Tryggvi Jónsson

Birgir Ingþórsson

Brynjólfur Friðriksson.                                                                

 

 

 

 

 

Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 22.09.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 13
Samtals: 184981

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning