Flýtilyklar
07. fundur hreppsnefndar
Miðvikudaginn 22. mars. 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00. Björn Magnússon setti fundinn og stjórnaði
honum. Þorleifur Ingvarsson ritaði fundargjörð. Jóhanna E. Pálmadóttir hafði boðað forföll, Guðrún Guðmundsdóttir sat
fundinn í hennar stað. Mæting á fundinn að öðru leyti samkvæmt undirskriftum.
Dagskrá.
1. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra mætir á fundinn.
2. Samningar vegna leigu á Húnavallaskóla, kynning.
3. Heimasíða og merki sveitarfélagsins
4. Reglur um afslætti á fasteignasköttum.
5. Reglur um heimgreiðslur vegna forskólabarna.
6. Reglur um námsstyrki til framhaldskólanema.
7. Greiðslur vegna tónlistarnema.
8. Akstursstyrkir.
9. Umsókn um veitingar- og gistileyfi á Húnavöllum.
10. Styrkbeiðnir.
a) frá Ferðamálafélagi A-Hún
b) frá Hestmannafélaginu Neista
c) frá Menor, v/æfingabúða á Húnavöllum
11. Fundargerðir.
a) Fundargerð Menningar- æskulýðs og íþróttanefndar.
b) Fundargerðir Byggðasamlags Húnavallaskóla frá 6.02 og 8.03.
c) Fundargerð skólanefndar Húnavallaskóla.
12. Önnur mál.
1. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra mætir á fundinn.
Steinunn Hjartardóttir framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra mætti á fundinn. Hún kynnti fjármál heilbrigðiseftirlitsins svo og starfsemi þess. Þá
svaraði Steinunn spurningum fundarmanna og yfirgaf síðan fundinn.
2. Samningar vegna leigu á Húnavallaskóla, kynning.
Björn kynnti drög að samningum sem Byggðasamlag Húnavallaskóla hefur gert við Ferðaþjónustu Húnavatnssýlu um leigu á
Húnavallaskóla næstu þrjú sumur.
3. Heimasíða og merki sveitarfélagsins.
Gerð heimasíðu fyrir Húnavatnshrepp er á lokastigi. Ákveðið var að
síðan verði opnuð formlega miðvikudaginn 5. april kl. 16.00.
Ólöf Birna og Björn lögðu fyrir fundinn nokkrar útgáfur af merki fyrir sveitarfélagið unnar af Guðráði Jóhannssyni á
Beinakeldu.
Valin voru fjögur merki sem sett verði inná heimasíðu í samráði við STEFNU og íbúar fái að greiða um þau
atkvæði í óformlegri könnun.
4. Reglur um afslætti á fasteignasköttum.
Fyrir fundinum lágu tillögur að reglum um afslætti á fasteignasköttum vegna
íbúðarhúsnæðis hjá öryrkjum og ellilífeyrisþegum. Málið var rætt og nokkrar breytingar gerðar síðan voru
reglurnar bornar upp og samþykktar samhljóða.
• Ef um hjón eða sambýlisfólk er að ræða, ræður aldur þess sem fyrr verður 67 ára á árinu án tillits til
þess hvort er skráð fyrir fasteigninni.
• Ef annað hjóna er ellilífeyrisþegi eða 75% öryrki er veittur 50% afsláttur.
• Ef bæði hjón eru ellilífeyrisþegar eða 75% öryrkar veittur 100% afsláttur.
• Ef einstaklingur er ellilífeyrisþegi eða 75% öryrki er veittur 100% afsláttur.
• Skilyrði fyrir niðurfellingu er að viðkomandi búi sjálfur í húsnæðinu og hafi ekki af því leigutekjur.
-
Við fráfall maka eða sambýlismanns/konu skal fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði sem fjölskylda hins látna á og býr í, felldur niður að fullu árið eftir fráfallið.
5. Reglur um heimgreiðslur vegna forskólabarna.
Fyrir fundinum lágu tillögur að reglum varðandi heimgreiðslur til foreldra forskólabarna. Málið var rætt og reglurnar samþykktar
samhljóða eftir lítilsháttar breytingar
• Greitt verði frá næstu mánaðarmótum eftir níu mánaða aldur.
• Greiddar verða 15 þúsund krónur á mánuði.
• Greitt verður til 1. september á sjötta aldursári.
• Foreldrar barna í daggæslu á Húnavöllum fái sem svarar eins mánaðar greiðslu í sumar.
6. Reglur um námsstyrki til framhaldskólanema.
Fyrir fundinum lágu tillögur að reglum varðandi greiðslu námsstyrkja til framhaldsskólanema. Málið var rætt og reglurnar síðan bornar
upp og samþykktar samhljóða eftir lítilsháttar breytingar.
• Greiddur er námsstyrkur til unglinga sem stunda nám í menntaskóla, fjölbrautarskóla eða sambærilegum menntastofnunum.
• Greiddar eru 50 þúsund krónur á hverja önn.
• Almennt skal miða við átta annir eftir grunnskóla.
• Greiðslur fari fram um miðjan apríl og miðjan nóvember.
• Nemendur þurfa að senda staðfestingu um að þeir stundi fullt nám í viðkomandi skóla til skrifstofu Húnavatnshrepps áður en
greiðsla fer fram.
7. Greiðslur vegna tónlistarnema.
Rætt var um þátttöku sveitarfélagsins í námskostnaði tónlistarnema sem stunda nám utan sveitarfélagsins.
8. Akstursstyrkir.
Fyrir fundinum lágu tillögur að reglum um greiðslu aksturstyrkja til íbúa sveitarfélagsins sem sækja daglega
vinnu umfram 40 km á dag. Málið var rætt og tillögurnar síðan bornar upp og samþykktar samhljóða.
• Greiddur er aksturstyrkur til þeirra sem sækja daglega vinnu frá heimili í Húnavatnshreppi. Greiddar eru kr. 20 á hvern ekinn kílómetra um
fram 40 kílómetra akstur á dag.
• Greiðsla fari fram eftirá á þriggja mánaða fresti.
• Sækja þarf um aksturstyrkinn og þarf staðfestingu vinnuveitenda á fjölda vinnudaga.
• Skilyrði fyrir akstursstyrk er að viðkomandi fái ekki greiddan bifreiðarstyrk frá vinnuveitenda.
9. Umsókn um veitingar- og gistileyfi á Húnavöllum.
Fyrir fundinum lá erindi frá sýslumannsembættinu á Blönduósi varðandi gisti og veitingaleyfi á Húnavöllum til handa
Ferðaþjónustu Húnavatnsyslu.
Málinu var frestað.
10. Styrkbeiðnir.
a. frá Ferðamálafélagi A-Hún
Tekið var fyrir erindi ferðamálafélagi A-Hún þar sem óskað er eftir 40.000 kr. styrk frá Húnavatnshrepp vegna ferðabæklings fyrir
Húnavatnssýslur. Erindið var samþykkt samhljóða eftir nokkrar umræður.
b. frá Hestmannafélaginu Neista
Tekin var fyrir styrkbeiðni frá hestamannafélaginu Neista vegna vetrarleika á Svínavatni 5. mars sl. Björn lagði til að hestamannafélagið
verði styrkt um 30.000,- kr. og var það samþykkt með sex atkvæðum eftir nokkrar umræður.
c. frá Menor, v/æfingabúða á Húnavöllum
Tekin var fyrir styrkbeiðni frá Sólveigu S. Einarsdóttur fyrir hönd Menor, varðandi æfingabúðir fyrir kórafólk á
Húnavöllum
11-13 ágúst. nk.
Samþykkt var samhljóða að styrkja málefnið um 100.000 kr.
Birgir Ingþórsson vék af fundi að loknum þessum dagsskrárlið.
11. Fundargerðir.
a. Fundargerð Menningar- æskulýðs og íþróttanefndar.
Fundargerð Menningar-, æskulýðs og íþróttanefndar Húnavatnshrepps frá 22. febrúar lá fyrir fundinum. Í fundargerðinni
er rætt um möguleika varðandi unglingavinnu í sveitarfélaginu og bent á verkefni á vegum Landsvirkjunar varðandi unglingavinnu. Ákveðið
var að skoða málið nánar í samráði við nefndina.
b. Fundargerðir Byggðasamlags Húnavallaskóla frá 6.02 og 8.03.
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
c. Fundargerð skólanefndar Húnavallaskóla.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
12. Önnur mál.
a) Rætt var um hugsanlega aðkomu Húnavatnshrepps að byggingu og rekstri á leikskóla í samstarfi við
Blönduósbæ. Ákveðið var að Björn Magnússon verði tengiliður Húnavatnshrepps við Blönduósbæ varðandi
það mál.
b) Ólöf Birna lagði fram svohljóðandi tillögu
E-listi leggur til að sveitarstjórn Húnavatnshrepps óski eftir fundi með svæðisstjóra vegagerðarinnar í Norðvesturkjördæmi og
Þorvaldi Böðvarsyni rekstrarstjóra vegagerðarinnar. Æskilegt er að fundur þessi sé haldin sem fyrst vegna óviðunandi ástands
í vegamálum hreppsins.
Tillagan var samþykkt samhljóða eftir miklar umræður um vegamál.
c) Samþykkt var að óska eftir fundi með alþingismönnum kjördæmisins varðandi samgöngumál ofl.
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 17.20.
Leita
Nýtt á vefnum
Teljari
Samtals: 249778