Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

06. fundur hreppsnefndar



Miðvikudaginn 1. mars. 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00. Björn Magnússon setti fundinn og stjórnaði honum. Þorleifur Ingvarsson ritaði fundargjörð. Birgir Ingþórsson hafði boðað forföll, Birgitta H Halldórsdóttir sat fundinn í hans stað. Mæting á fundinn að öðru leiti samkvæmt undirskriftum.

Dagskrá.

1. Málefnaskrá v/sameiningarkosninga, síðari umræða.
2. Kjörskrárstofn.
3. Gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunareftirlit Norðurlandi vestra.
4. Tilnefning í stjórn ráðgjafanefndar fyrir friðlandið í Guðlaugstungum.
5. Umsókn um gisti- og veitingaleyfi.
6. Umsögn um drög að frumvarpi til laga um heilbrigðisþjónustu.
7. Umsögn um tillögu til þingályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun
2006-2009.
8. Fundargerðir.
a) Fundargerðir Norðurár bs. frá 9.01 og 17.01.2006
b) Fundargerð fjarskiptanefndar Húnavatnshrepps frá 20.02.2006.
c) Fundargerð hússtjórnar Dalsmynnis frá 21.02.2006.
d) Fundargerð byggingarnefndar frá 13.02.2006.
e) Fundargerð stjórnar SSNV frá 14.02.2006
f) Fundargerð Atvinnu- og samgöngunefndar Húnavatnshrepps frá 15.02
9. Önnur mál.

1. Málefnaskrá v/sameiningarkosninga, síðari umræða.
Málefnaskrá vegna sameiningarkosninga Áshrepps og Húnavatnshrepps 11. mars. nk. var tekin til síðari umræðu.

2. Kjörskrárstofn.
Kjörskrárstofn vegna sameiningakosninga Áshrepps og Húnavatnshrepps lá fyrir fundinum. Kjörskrárstofninn var yfirfarin og síðan samþykktur og undirritaður og gildir sem kjörskrá fyrir kosningar 11. mars.nk. Á kjörskrá eru 277 manns 158 karlar og 119 konur. Oddvita falið að ganga frá kjörskrá að loknum kærufresti ef ekki koma fram kærur.
Skipting milli kjördeilda í Húnaveri og Húnavöllum verður um Blöndu að öðru leiti en því að Blöndudalur að vestan tilheyrir kjördeild í Húnaveri.

3. Gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunareftirlit Norðurlandi vestra.
Fyrir fundinum lá bréf frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra varðandi
breytingar á gjaldskrá fyrir heilbrigðis- og mengunareftirlit á Norðurlandi vestra.
Einnig lá fyrir fundinum útreikningur á hlutdeild Húnavatnshrepps í áðurnefndum gjöldum. Þar er gert ráð fyrir að hlutur Húnavatnhrepps verði 304.000 kr. og hlutur fyrirtækja innan hreppsins verði 532.000 kr.
Samþykkt var að óska eftir að framkvæmdsstjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra komi á fund með hreppsnefndinni.
Gjaldskráin var borin upp og samþykkt með öllum atkvæðum.


4. Tilnefning í stjórn ráðgjafanefndar fyrir friðlandið í Guðlaugstungum.
Fyrir fundinum lá erindi frá umhverfisstofnun varðandi ráðgjafanefnd fyrir
friðlandið í Guðlaugstungum á Eyvindarstaðarheiði. Þar er óskað eftir að Húnavatnshreppur tilnefni tvo menn í stjórn. Ákveðið var að tilnefna Tryggva Jónsson og Brynjólf Friðriksson sem aðalmenn. Varamenn voru tilnefndir Sigursteinn Bjarnason og Erla Hafsteinsdóttir.

5. Umsókn um gisti- og veitingaleyfi.
Fyrir fundinum lá erindi frá sýslumannsembættinu á Blönduósi varðandi
umsókn Veiðihúsa ehf til að reka gistiskála og einkasal í veiðihúsi Blöndu og
Svartár.
Málinu frestað þar til úttekt byggingarfulltrúa hefur farið fram.

6. Umsögn um drög að frumvarpi til laga um heilbrigðisþjónustu.
Bréf frá nefnd um endurskoðun laga um heilbrigðisþjónustu lá fyrir fundinum
þar er óskað umsagnar um drög að frumvarpi til laga um heilbrigðisþjónustu.
Málið var rætt og ekki gerðar efnislegar athugasemdir að öðru leiti en því að
áhersla var lögð á að Austur- Húnavatnsýsla verði áfram sér heilbrigðisumdæmi.

7. Umsögn um tillögu til þingályktunar um stefnumótandi byggðaáætlun
2006-2009.
Fyrir fundinum lá erindi frá Iðnaðarnefnd Alþingis varðandi þingsályktun um
stefnumótandi byggðaáætlun 2006-2009.
Málið var rætt og ákveðið að svara erindinu efnislega og koma á framfæri
athugasemdum og árétta kröfur um að Norðurland vestra gleymist ekki í
aðgerðum í byggðamálum. Oddvita falið að undirbúa bókun um málið.

8. Fundargerðir.
a) Fundargerðir Norðurá bs. frá 9.01 og 17.01.2006
Fundargerðir Norðurá bs, byggðasamlags um sorpeyðingu á Norðurlandi
vestra voru lagðar fram til kynningar.
b) Fundargerð fjarskiptanefndar Húnavatnshrepps frá 20.02.2006.
Lögð fram til kynningar
c) Fundargerð hússtjórnar Dalsmynnis frá 21.02.2006.
Lögð fram til kynningar
d) Fundargerð byggingarnefndar Húnavatnshrepps frá 13.02.2006.
Lögð fram til kynningar.
e) Dreift var til kynningar fundargerð stjórnar SSNV frá 14.02
f) Dreift var til kynningar fundargerð Atvinnu- og samgöngunefndar
Húnavatnshrepps frá 15.02.

9. Önnur mál.
a) Ákveðið var að Húnavatnshreppur muni nýta heimild Launanefndar sveitarfélaga til hækkunnar lægstu launa og gildir sú hækkun frá áramótum.

Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 15.00.




Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 22.09.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 13
Samtals: 184981

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning