Flýtilyklar
05. fundur hreppsnefndar
Miðvikudaginn 22. febrúar 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00. Björn Magnússon setti fundinn og
stjórnaði honum. Mæting á fundinn var samkvæmt undirskriftum.
Dagskrá.
1. Fjárhagsáætlun 2006. síðari umræða.
Þriggja ára áætlun, síðari umræða.
2. Ráðning á endurskoðanda.
3. Ráðning á byggingarfulltrúa.
4. Málefnaskrá v/ sameiningarkosninga 11 mars nk.
5. Heimasíðugerð.
6. Erindi frá Leið ehf.
7. Fundargerðir stjórnar SSNV.
8. Önnur mál.
1. Fjárhagsáætlun 2006, síðari umræða.
Þriggja ára áætlun, síðari umræða.
Fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps 2006 var tekin til síðari umræðu. Fjárhgsáætlun var rædd og lítilsháttar
breytingar gerðar. Heildartekjur eru áætlaðar 199.400 þús kr. og gjöld 196.858 þús kr. Hagnaður er gert ráð fyrir að verði
2.542 þús kr. Heildar eignir 31.12.2006. eru áætlaðar 290.542 þús kr og eigið fé 247.142 þús kr. Þannig breytt var
áætlunin samþykkt samhljóða með öllum atkvæðum.
Þriggja ára áætlun Húnavatnshrepps lá fyrir fundinum. Eftir nokkrar umræður var áætlunin borin upp og samþykkt
samhljóða með öllum atkvæðum.
2. Ráðning á endurskoðanda.
Rætt var um ráðningu á löggiltum endurskoðanda fyrir sveitarfélagið og bar Björn upp þá tillögu að Kristján
Jónasson hjá KPMG á Sauðárkróki verði ráðinn.
Samþykkt samhljóða með öllum atkvæðum.
3. Ráðning á byggingarfulltrúa.
Rætt var ráðningu á byggingarfulltrúa fyrir sveitarfélagið og ákveðið var að leita eftir við Bjarna Þór Einarsson
á Hvammstanga að starfa áfram hjá sveitarfélaginu til hausts á sömu kjörum og verið hafa.
Samþykkt samhljóða með öllum atkvæðum.
4. Málefnaskrá v/sameingingakosninga 11. mars.nk..
Málefnaskrá vegna sameinginakosninga Áshrepps og Húnavatnshrepps þann 11 mars nk. var tekin til fyrri umræðu.
5. Heimasíðugerð.
Fyrir liggur samkomulag við STEFNU ehf á Akureyri um heimasíðugerð fyrir Húnavatnshrepp og var það samþykkt samhljóða með öllum
atkvæðum.
Jóhönnu og Ólöfu Birnu var falið að sjá um gagnavinnslu vegna heimasíðugerðarinnar.
6. Erindi frá Leið ehf.
Fyrir fundinum lá erindi frá Leið ehf. Þar sem óskað er umsagnar um hugmyndir Leiðar ehf varðandi lagningu nýs vegar norðan Svínavatns
yfir í Langadal.
Björn lagði fram eftirfarandi tillögu:
Hreppsnefnd Húnavatnshrepps leggst ekki gegn því að kannaðir séu nýjir möguleikar á vegstæði fyrir þjóðveg nr.
1.
Hreppsnefndin leggur þunga áherslu á að haft sé náið samráð við landeigendur og aðra heimamenn um ný vegsvæði.
Hinsvegar hafnar hreppsnefnd Húnavatnshrepps öllum hugmyndum um veggjald á vegum sem íbúar hreppsins þurfa að aka daglega um.
Eftir nokkrar umræður var tillagan samþykkt samhljóða með öllum atkvæðum.
7. Fundargerðir stjórnar SSNV.
Fundargerðir stjórnar SSNV frá 4. okt, 26 okt. og 8. des. 2005 voru lagðar fram til kynningar.
8. Önnur mál.
a) Björn kynnti hugmyndir RARIK um frekari heitavatnsleit á Reykjum og áhuga RARIK á að kaupa hlut Húnavatnshrepps í jarðhitaréttindum á
Reykjum.
b) Jón kynnti hlutdeild og aðkomu Húnavatnshrepps að félögum og eignum sem Svínavatnshreppur var áður með eignarhluti í s.s. í
Hveravallafélaginu ehf og Auðkúluheiði ehf. Jón upplýsti að fjármunir á móti skuld sem áður tilheyrði
Svínavatnshreppi hjá Auðkúluheiði ehf hafi verið lagðir sem greiðsla til nýs sveitarfélags.
c) Jóhanna útskýrði þá túlkun að sjóður vegna hitaveituframkvæmda
standi undir greiðslu afborgana og vaxta af skuld sem áður tilheyrði Torfalækjarhreppi hjá Auðkúluheiði ehf.
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 15.20
Fundarritari
Þorleifur Ingvarsson
.