Flýtilyklar
04. fundur hreppsnefndar
Fimmtudaginn 2. febrúar 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00 Björn Magnússon setti fundinn og
stjórnaði honum. Mæting á fundinn var samkvæmt undirskriftum.
dagskrá.
1. Samþykktir síðari umræða.
2. Fjarskiptamál.
3. Fráveitumál.
4. Ljósavæðing
5. Skipulags- og byggingamál við Húnavelli.
a. deiliskipulag
b. íbúðarhúsnæði, v/sveitarstjóra, kennara.
c. leikskóli, skrifstofa sveitarfélags
d. sparkvöllur
6. Fréttabréf, heimasíða og merki.
7. Refa og minkavinnsla.
8. Álagning fasteignagjalda.
9. Vilko
10. Fjárhagsáætlun 2006, fyrri umræða
11. Sameiningakosningar.
12. Önnur mál.
1. Samþykktir síðari umræða.
Samþykktir Húnavatnshrepps voru teknar til síðari umræðu. Lítilsháttar breytingar voru gerðar og þannig breyttar voru samþykktirnar
samþykktar samhljóða.
Undir þessum lið dreifði Björn drögum að erindisbréfum nefnda sveitarfélagsins.
Ákveðið var fela Birni og Ólöfu Birnu að yfirfara erindisbréfin og að aðrir hreppsnefndarmenn komi ábendingum til þeirra.
2. Fjarskiptamál, kosning nefndar.
Miklar umræður urðu um fjarskiptamál í sveitarfélaginu og lagningu háhraða nettengingu um þau svæði sveitarfélagsins sem ekki hafa
þegar fengið þannig nettengingar.
Ákveðið var að skipa þriggja manna nefnd til þess að vinna að fjarskiptamálum í sveitarfélaginu.
Kosningu í nefndina hlutu Ægir Sigurgeirsson, Óskar E Ólafsson og Björn Þór Kristjánsson. Til vara Gunnar Kristjánsson, Ragnar Bjarnason og
Kristján Birgisson.
3. Fráveitumál.
Rætt var um fráveitumál og ákveðið að setja af stað vinnu til að taka út ástand fráveitumála í
sveitarfélaginu. Byggingar- og umhverfisnefnd er falið að sjá um málið og hefja þá vinnu hið fyrsta.
Einnig var rætt um tæmingar á rotþróm og rætt um að fá tilboð í það verk.
4. Ljósavæðing.
Rætt var um uppsetningu ljósastaura í þeim hluta sveitarfélagsins sem áður tilheyrði
Bólstaðarhlíðarhreppi. Ákveðið var að vinna málið áfram og jafnframt að kanna áhuga íbúa á
svæðinu.
5. Skipulags- og byggingarmál við Húnavelli.
a) deiliskipulag.
Ákveðið var að hefja vinnu við deiliskipulag fyrir landsvæðið frá Húnavallaskóla að Svínavatni.
Innan þess rúmist eftir atvikum íbúðarhúnæði, leikskóli og smábýli.
b) Íbúðarhúsnæði v/sveitarstjóra, kennara
Rætt var um þörf á auknu íbúðarhúsnæði á svæðinu s.s. fyrir sveitarstjóra og kennara. Ákveðið var
að hefja undirbúning að byggingu tveggja til þriggja íbúða í samvinnu við Byggðasamlag Húnavallaskóla.
c) Leikskóli, skrifstofa Húnavatnshrepps
Miklar umræður urðu um leikskólamál. Ákveðið var að kanna þörfina fyrir leikskóla fyrir forskólabörn í
sveitarfélaginu og að félagsmálanefnd verði falið að vinna að málinu.
d) sparkvöllur
Fundarmenn tóku jákvætt í að byggja sparkvöll.
Málinu vísað til Byggðasamlags Húnavallaskóla til frekari afgreiðslu.
6. Fréttabréf, heimasíða og merki.
Fyrir liggja tilboð frá Hörpu Eggertsdóttur , Glox Software og STEFNU ehf um gerð
á heimasíðu fyrir sveitarfélagið. Ákveðið var að fela Birni, Ólöfu Birnu og Jóhönnu að bera saman tilboðin og leita
eftir samningum við þann aðila sem þau meta hagstæðastan fyrir sveitarfélagið.
Jóhanna kynnti þá vinnu sem unnin hefur verið við gerð merkis fyrir sveitarfélagið.
Ákveðið var að gefa út fréttabréf hið fyrsta.
7. Refa og minkavinnsla.
Ákveðið var að greiða 10.000 kr. verðlaun fyrir unnin ref þ.e. hlaupadýr. Varðandi grenjavinnslu verði samið við ákveðna aðila.
Fyrir yrlinga verði greitt eftir viðmiðunarreglum veiðistjóra svo og fyrir mink.
8. Álagning fasteignagjalda.
Fasteignagjöld voru ákveðin 0.5% á A hluta, 1,32 % með álagi 1,65% á C hluta og 0.44% á B hluta. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar
fái niðurfellingu á fasteignagjöldum af íbúðarhúsnæði að hluta til eða að öllu leiti. Reglur þar um verða
ákveðnar síðar.
9. Vilko.
Tilboð hefur borist í hlutafé Húnavatnshrepps í Vilko ehf. frá Pálsgerði ehf á genginu 2,4. Ákveðið var að afla
nánari upplýsinga áður en málið verði afgreitt.
10. Fjárhagsáætlun 2006, fyrri umræða.
Fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps fyrir árið 2006 lá fyrir fundinum einnig þriggja ára áætlun vegna árana 2007, 2008 og
2009.
Þá lá fyrir fundinum erindi frá Rannsókn og Ráðgjöf ferðaþjónustunnar vegna gerð sögukorts fyrir Norðurlands Vestra.
Einnig lá fyrir erindi frá Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps vegna kóramóts sem verður haldið 16-17 júní nk.
Ákveðið var að styrkja gerð sögukorts um kr. 250.000 og kóramótið um kr. 250.000,-
Ákveðið var að sveitarfélagið taki þátt í kostnaði við ristahlið á heimkeyrslur lögbýla í
sveitarfélaginu kr. 100.000 á móti greiðslu héraðssjóðs.
Fjárhagsáætlun var yfirfarin og rædd. Síðan var samþykkt að vísa henni til síðari umræðu.
11. Sameiningarkosningar.
Sameiningarnefnd Húnavatns- og Áshrepps leggur til að gengið verði til sameiningarkosninga í Húnavatns- og Áshreppi þann 11. mars nk.
Sú dagsetning var borin upp og samþykkt samhljóða að sameiningarkosningar fari fram 11. mars 2006.
12. Önnur mál.
a) Tryggvi ræddi um aðalskipulag sem er í vinnslu hjá Sveitarfélaginu Skagafirði og sagði frá
því að ekki sé eining um landamerki í nokkrum tilfellum.
b) Tryggvi kynnti fyrir fundarmönnum tilgang Bændasjóðs Bólstaðarhlíðarhrepps, en gert er
ráð fyrir að sveitarfélagið kjósi þrjá menn í stjórn hans. Einnig kynnti Tryggvi stöðu mála hjá
Eyvindarstaðaheiði ehf.
c) Jón gerði grein fyrir stöðu mála varðandi frágáng á gögnum sameinaðara hreppa og
lagði til ásamt Brynjólfi að Stefán Á Jónsson verði fenginn til að stjórna því verki. Samþykkt var að fela
Stefáni verkið ef um semst.
d) Jón gerði grein fyrir samningi um rekstur á Áfangaskála við Kristján Birgisson og
Þóru G Þórsdóttur.
e) Brynjólfur ræddi um vegina í Blöndudal að austan og Svartárdal sem eru forarsvað vegna
lélegs ofaníburðar. Oddvita var falið að koma á framfæri harðorðum mótmælum.
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 18.00
Fundarritari
Þorleifur Ingvarsson
Leita
Nýtt á vefnum
Teljari
Samtals: 249778