Flýtilyklar
04. fundur byggingar- og umhverfisnefndar
Byggingarnefndin í Húnavatnshreppi
Fundargerð
Fundur í byggingarnefnd Húnavatnshrepps, haldin laugardaginn 28. september 2006 í Dalsmynni, kl. 13:00.
Fundinn sátu Fanney Magnúsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Kristján Jónsson, og Bjarni Þór Einarsson, byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Formaður nefndarinnar Kristján Jónsson setti fundinn og stjórnaði honum.
- Erindi frá Gunnari Ríkharðssyni, fyrir hönd Þingeyrabúsins ehf (680297-2319) og Ingimundar Sigfússonar (130138-7569) um leyfi bygginganefndar Húnavatnshrepps til að byggja hesthús á Þingeyrum samkvæmt framlögðum teikningum gerðum af Sveini Ívarssyni, arkitekt, og ófullgerðri afstöðumynd sem fylgir umsókninni. Byggingarnefnd samþykkir erindi fyrir sitt leyti með fyrirvara um meðmæli Skipulagsstofnunar, samþykki Brunamálastofnunar og fullnægjandi hönnunargögn.
- Erindi frá Kára Snorrasyni, umsókn um byggingarleyfi fyrir garðhúsi við sumarhús hans Víðimel í landi Marðanúps í Vatnsdal. Húsið er af gerðinni Lillavilla 2B 2,4x2,1m. að utanmáli. Teikning af húsinu fylgdi umsókninni, afstöðumynd og skráningartöflu vantar. Byggingarnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn.
- Erindi frá Unyversity of Arizona, umsókn um stöðuleyfi fyrir GPS mælistöð á Hveravöllum, staðsetning er á klöpp norðan girðingar sauðfjárveikivarna við vegslóða að hesthúsum, 64°52,38’N, 19°33,68’V. Mælingum er ætlað að standa a.m.k. til 2010. Byggingarnefnd samþykkir erindið.
- Gamla íbúðarhúsið í Brattahlíð í Svartárdal – ósk um niðurrif.
-
- Bréf byggingarfulltrúa til minjavarðar Norðurlands vestra og húsfriðunarnefndar ríkisins lögð fram til kynningar.
- Svar minjavarðar Norðurlands vestra lagt fram til kynningar.
- Svar húsfriðunarnefndar ríkisins lagt fram til kynningar.
Afgreiðslur byggingarnefndar taka ekki gildi fyrr en sveitarstjórn hefur staðfest þær.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 14:00
Höfundur: Þorleifur Ingvarsson - Uppfært: 26.10.2006
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni