Flýtilyklar
03. fundur byggingar og umhverfisnefndar
Byggingarnefndin í Húnavatnshreppi
Fundargerð
Fundur í byggingarnefnd Húnavatnshrepps, haldin laugardaginn 8. júlí 2006 í Dalsmynni, kl. 14:00.
Fundinn sátu Fanney Magnúsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Kristján Jónsson, og Bjarni Þór Einarsson, byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.
Formaður nefndarinnar Kristján Jónsson setti fundinn og stjórnaði honum.
- Erindi frá Hveravallafélaginu ehf, umsókn um stöðuleyfi fyrir starfsmannahúsi á Hveravöllum. Afstöðumynd send af Jóni Guðmundssyni arkitekt fylgir umsókninni. Byggingarnefnd samþykkir umbeðið stöðuleyfi til eins árs.
- Erindi frá Jóni Gíslasyni og Eline Manon Schrijver, Hofi í Vatnsdal, umsókn um byggingarleyfi fyrir 408,5 m2 fjárhúsi og tengibyggingu sunnan við núverandi fjárhús á Hofi. Aðaluppdrættir, afstöðumynd og staðsetningarkort, allt gert af Byggingarþjónustu Bændasamtaka Íslands, fylgja umsókninni. Skráningartöflu vantar. Byggingarnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn.
- Erindi frá Óskari Guðmundssyni og Fanneyju Magnúsdóttur, umsókn um byggingarleyfi fyrir 337,8m2 skemmu norðvestan við núverandi fjós á Eyvindarstöðum. Aðaluppdrættir og skráningartafla sem gerð eru af Guðmundi Þór Guðmundssyni, byggingarfræðingi fylgja erindinu. Yfirlitsuppdrátt vantar ásamt málsetningu á afstöðumynd. Umsagnar hefur verið leitað hjá Skipulagsstofnun skv. 3.tl. bráðabirgðaákvæðis skipulags- byggingarlaga, en svar ekki borist enn. Byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti með fyrirvara um fullnægjandi hönnunargögn.
- Erindi frá Óskari Guðmundssyni, umsókn um leyfi til að fjarlægja hlöðu nr. 213-8204 050101 í Steinárgerði í Svartárdal. Byggingarnefnd samþykkir erindið.
- Erindi frá Sigurði Inga Sigurðssyni, kt. 161057-4299, Syðri- Löngumýri, um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám sem staðsettur verður við hlöðu á Syðri-Löngumýri. Byggingarnefnd samþykkir erindið
Afgreiðslur byggingarnefndar taka ekki gildi fyrr en sveitarstjórn hefur staðfest þær.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:00
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 22.09.2006
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni