Flýtilyklar
02. fundur stjórnar Dalsmynnis
Hússtjórnarfundur 23.03.2006.
Guðrún setti fund og vatt sér beint í að gera gjaldskrá fyrir húsið. Ákveðið hefur verið að húsið selji kaffi á fundum og smærri samkomum sé þess óskað.
Molakaffi
200.- krónur.
Kaffi og meðlæti
800.- krónur.
Fundir
2.500.- 8.000. krónur að mati húsvarðar
Fermingarveislur og aðrar áþekkar
15.000.- krónur.
Afmælisveislur og veislur utansveitarmanna
23.000.- krónur
Ættarmót verði metin af húsverði eftir stærð þeirra,
viðmiðunarverð
65.000.- krónur.
Svefnpokapláss
1.000- krónur.
Svefnpokapláss með eldunaraðstöðu
1.300.- krónur.
Talið er eðlilegast að Kvenfélagið hafi afnot af húsinu í samráði við húsvörð enda
skili þær húsinu hreinu eftir alla viðburði sem félagið hefur tekjur af.
Oddviti mætti á fundinn, hússtjórn til halds og trausts. Hann upplýsti að heimasíða
Húnavatnshrepps kæmist í gagnið um mánaðarmót, og hafi Dalsmynni svæði þar undir takkanum ferðaþjónusta.
Sími verður áfram í húsinu og skal geymdur inn á kontor.
Fundi slitið.
Sig. Ingi Guðmundsson