Flýtilyklar
02. fundur hreppsnefndar
Þriðjudaginn 10. janúar 2006 kom hreppsnefnd Húnavatnshrepps saman til fundar að Húnavöllum, kl. 13.00. Björn Magnússon setti fundinn og
stjórnaði honum. Mæting á fundinn var samkvæmt undirskriftum.
Dagskrá.
1. Samþykktir Húnavatnshrepps.
2. Ráðning verkefnisstjóra.
3. Frágangur ársreikninga 2005.
4. Fjárhagsáætlun 2006, undirbúningur.
5. Sorphirða.
6. Heimilishjálp.
7. Bréf Samstöðu.
8. Bréf SSNV.
9. Bréf til dómsmálaráðuneytis vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
10. Önnur mál.
1. Samþykktir Húnavatnshrepps.
Tillaga að samþykktum um stjórn og fundasköp Húnavatnshrepps var lögð fram á fundinum yfirfarin af Birni og Ólöfu Birnu, eftir
ákvörðun seinasta fundar. Málið var rætt og ýmsar smávegilegar breytingar voru gerðar á samþykktunum. Þannig breyttar voru
samþykktirnar bornar upp og samþykktar samhljóða. Birni og Ólöfu Birnu falið að ganga frá samþykktum Húnavatnshrepps í endanlegt
form.
2. Ráðning verkefnisstjóra.
Björn kynnti samkomulag við Þorleif Ingvarsson um ráðningu hans til tímabundina
starfa fyrir sveitarfélagið. Samþykkt var samhljóða að ráða Þorleif sem verkefnisstjóra til 1. ágúst nk. á grundvelli
fyrirliggjandi samkomulags.
3. Frágangur ársreikninga 2005.
Samþykkt var að fela Jóni Gíslasyni og Brynjólfi Friðrikssyni að semja
við fráfarandi oddvita um uppgjör á bókhaldi Bólstaðarhlíðar- Svínavatns-. Sveinsstaða.- og Torfalækjarhrepps vegna ársins
2005.
4. Fjárhagsáætlun 2006, undirbúningur.
Rætt var um þá vinnu sem framundan er við gerð
fjárhagsáætlana fyrir Húnavatnshrepp.
5. Sorphirða.
Björn gerði grein fyrir viðræðum við Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar ehf. varðandi sorphirðu
í sveitarfélaginu og að Vilhelm muni gera tilboð í sorphirðu í öllu sveitarfélaginu.
Ákveðið var að semja við Sorphreinsun Vilhelms um hirðingu á rúlluplasti til vors eftir nánara samkomulagi þar um, einnig verði hirðing
á heimilissorpi með óbreyttu sniði til vors.
6. Heimilishjálp.
Rætt var um starfsfólk í heimaþjónustu og við barnagæslu á vegum
sveitarfélagsins og nauðsyn á að samræma launakjör þeirra.
7. Bréf Samstöðu.
Fram var lagt bréf frá Ásgerði Pálsdóttur formanni Stéttarfélagsins
Samstöðu
varðandi launakjör hjá starfsmönnum Húnavatnshrepps og ósk um viðræður þar að lútandi. Samþykkt var að bjóða
Ásgerði að mæta á næsta fund hreppsnefndar.
Samþykkt var að Húnavatnshreppur feli Launanefnd Sveitarfélaga að fara með samningsumboð fyrir sveitarfélagið.
Ákveðið var að Björn Magnússon fari sem fulltrúi sveitarfélagssins á launaráðstefnu sveitarfélaga 20 jan. nk.
8. Bréf SSNV.
Fram var lagt bréf frá SSNV varðandi þjónustusamning um málefni fatlaðra,
sem rennur út í árslok.
Samþykkt var að stjórn SSNV fái umboð til undirbúnings nýs þjónustusamnings milli SSNV og félagsmálaráðuneytis um
reksturs málefna fatlaðra.
9. Bréf til dómsmálaráðuneytis vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Jón Gíslason kynnti
bréf til Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra þar sem gerð er athugasemd við framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu
hjá Sýslumannsembættinu í Reykjavík vegna sveitarstjórnakosninga 10. des sl.
10. Önnur mál.
a) Björn kynnti tilboð vegna kaupa á fartölvu fyrir sveitarfélagið.
b) Rætt var um heimasíðugerð fyrir sveitarfélagið, merki ( logo) fyrir
Húnavatnshrepp, bætt gsm. samband og háhraðanet innan sveitarfélagsins.
c) Rætt var akstur framhaldsskólanema í Fjölbrautarskóla Norðurlands Vestra
og námsstyrki til framhaldsskólanema í sveitarfélaginu.
d) Rætt var um sumarstarfsemi í Húnavallaskóla og rekstur á sundlauginni.
e) Samþykkt var að starfsemi bókasafna í sveitarfélaginu verði með óbreyttu sniði til vors.
f) Rætt var um aðkomu Húnavatnshrepps að Félagsþjónustu A-Hún.
Ólöf Birna óskaði eftir svohljóðandi bókun.
Fulltrúar E- lista telja æskilegt að öll störf á vegum sveitarfélagsins verði auglýst áður en til ráðningar kemur.
Fleira ekki gert fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið kl. 17.20.
Fundarritari
Þorleifur Ingvarsson