Húnavatnshreppur

Húnavatnshreppur

02. fundur byggingar- og umhverfisnefndar

 
Byggingarnefndin í Húnavatnshreppi
 
Fundargerð
 

Fundur í byggingarnefnd Húnavatnshrepps, haldin fimmtudaginn 22. júní 2006 í Dalsmynni, kl. 20:00.

 

Fundinn sátu Fanney Magnúsdóttir, Jóhann Guðmundsson, Kristján Jónsson, og Bjarni Þór Einarsson, byggingarfulltrúi sem ritaði fundargerð.

Aldursforsetin nefndarinnar Jóhann Guðmundsson setti fundinn og stjórnaði kjöri formanns nefndarinnar, Kristján Jónsson var kjörinn formaður nefndarinnar. Nýkjörinn formaður tók þá við fundarstjórn og stýrði kjöri varaformanns og ritara. Varaformaður var kosinn Fanney Magnúsdóttir og ritari Jóhann Guðmundsson.

Þá var samþykkt að tölvuskrá fundargerðir nefndarinnar og rita upplýsingar um fundi í fundargerðarbók samkvæmt reglum þar um. Þá var gengið til dagskrár.

 
  1. Erindi frá Brúsa ehf, kt. 640402-4660, Brúsastöðum, umsókn um leyfi til að byggja 500 m2 geldneytafjós, 25 m sunnan við núverandi fjós. Aðaluppdrættir og skráningartafla sem gerð eru af Ívari Ragnarssyni, byggingarfræðingi, fylgja erindinu. Umsagnar hefur verið leitað hjá Skipulagsstofnun skv. 3.tl. bráðabirgðaákvæðis skipulags- byggingarlaga en svar ekki borist enn. Byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
  2. Erindi frá Einari Svavarssyni, Hjallalandi, umsókn um leyfi til að byggja 695,1 m2 fjárhús norðan við núverandi fjárhús. Aðaluppdrættir og skráningartafla sem gerð eru af ES teiknistofu Suðurlandsbraut 48, fylgja erindinu. Umsagnar hefur verið leitað hjá Skipulagsstofnun skv. 3.tl. bráðabirgðaákvæðis skipulags- byggingarlaga og hjá Umhverfisstofnun vegna svæðis á náttúruminjaskrá en svör ekki borist enn. Byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
  3. Erindi frá Birni Magnússyni, Hólabaki, sækir um leyfi til að rífa og fjarlægja gömul fjárhús, byggð úr járni og timbri og standa vestan við fjóshlöðu. Auðkenni 213-6034. Hugmyndir eru um að byggja 160 m2 hesthús á sama stað. Byggingarnefnd samþykkir erindið enda sé húsið án veðbanda.
  4. Erindi frá Birni Magnússyni, Hólabaki, óskar eftir nýrri staðsetningu á húsi sem var áður í landi Hólabaks við Gljúfurá, lóð 144718. Óskað er eftir samþykkt á staðsetningu milli upphlaðins garðs sunnan íbúðarhúss og vegslóða gömlu póstleiðarinnar. Umrætt hús hefur auðkennið 213-6044 í fasteignaskrá undir heitinu Gljúfurholt, veiðihús. Hlutverk hússins á nýjum stað er ætlað að vera starfsmannaaðstaða. Útlits- grunn- og afstöðumynd gerð af Ráðbarði sf. fylgir umsókninni. Byggingarnefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti.
  5. Byggingarfulltrúi lagði fram nýjan uppdrátt af breyttum landamerkjum milli Áss og Ásbrekku, þar sem land Ásbrekku stækkar um 22,406 m2. Byggingarnefnd samþykkir uppdráttinn fyrir sitt leyti og gerir ekki athugasemd við fyrirhugaðar breytingar á landamerkjum enda séu þær samþykktar af öllum eigendum jarðanna.
  6. Erindi frá Kristínu Þórarinsdóttur, Kóngsbakka 14, Reykjavík, umsókn um byggingarleyfi fyrir 18,1 m2 tækjageymslu á sumarbústaðalandi 2 í landi Hnausa, landnúmer 144715. Aðaluppdráttur og skráningartafla fylgir umsókninni gert af Jóni Guðmundssyni, arkitekt og afstöðumynd gerð af Stoð ehf. á Sauðárkróki. Byggingarnefnd samþykkir erindið.
  7. Erindi frá Lárusi Valtýssyni, kt. 160952-7419, sækir um leyfi til að rífa gamla íbúðarhúsið í Brattahlíð, auðkenni 213-7950, 03 0101. Byggingarnefnd frestar afgreiðslu erindisins og felur byggingarfulltrúa að leita umsagnir húsfriðunarnefndar og minjavarðar Norðurlands vestra.
  8. Erindi frá Sigurjón Stefánsson, kt. 191038-7469, eiganda jarðarinnar Steiná III í Svartárdal, landnúmer 145392, sækir um að stofna tvær lóðir úr landi Steinár III, samkvæmt meðfylgjandi stofnskjölum og hnitasettum uppdráttum gerðum af STOÐ ehf. Lóðirnar eru 5008m2  og 2200m2. Jafnframt er leitað staðfestingar á því að framangreindar lóðir séu teknar úr landbúnaðarnotkun. Byggingarnefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.
  9. Erindi frá Ungmennafélagi Bólstaðahlíðarhrepps, umsókn um stöðuleyfi fyrir 20 feta gám neðan við skógarreitinn í Húnaveri á svæði félagsins. Gámurinn er ætlaður sem köld geymsla undir áhöld félagsins til íþróttaiðkunar. Byggingarnefnd samþykkir umbeðið stöðuleyfi til eins árs.
  10. Erindi frá Svavari Jónsyni eiganda jarðarinnar Axlar, umsókn að nýju á grunsvelli nýs svæðisskipulags Austur- Húnavatnssýslu, um leyfi fyrir þremur sumarbústaðalóðum í landi Axlar skv. fyrirliggjandi teikningu sem gerð er af verkfræðistofunni Stoð ehf. Byggingarnefndin samþykkir erindi fyrir sitt leyti með fyrirvara um jákvæða umsögn Skipulagsstofnunar.
 

Afgreiðslur byggingarnefndar taka ekki gildi fyrr en sveitarstjórn hefur staðfest þær.

 

Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:45

 
 
Höfundur: Stefna ehf - Uppfært: 22.09.2006

Mynd augnabliksins

Teljari

Í dag: 35
Samtals: 249244

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning