Flýtilyklar
01. fundur Menningar- íþrótta og æskulýðsnefndar
Fundargerð nr. 1 2006.
Fundur var haldinn að Húnavöllum miðvikudaginn 22 febrúar kl.15.00. Mætt voru Þóra Guðrún Þórsdóttir formaður, Grímur Guðmundsson varaformaður og Sigþrúður Friðriksdóttir ritari.
Þóra Guðrún Þórsdóttir setti fundinn.
-
Þóra skýrði frá því að hún hefði haft sent formanni USAH Birki Freyssyni fyrirspurn á tölvupósti um gang mála hjá þeim en ekki fengið svar. En hún hefði rætt við varaformanninn Þórunni Ragnarsdóttir. Hún sagði að ekki væri bjart framundan í þjálfaramálum hjá USAH. Það vantaði fjámagn frá sveitarfélögunum til að ráða framkvæmdarstjóra félagsins til að halda utan um stjórnun sambandsins.
-
Grímur skýrði frá því að hann hefði rætt við Guðmund Stefánsson hjá Blönduvirkjun um möguleika á samstarfi með unglingavinnu næsta sumar, en Guðmundur var ekki bjartsýnn á það. En benti á að kanna möguleika á að sækja um að vera með í verkefni sem heitir “Margar hendur vinna létt verk”.En það er verkefni á vegum Landsvirkjunar. Nánari upplýsingar er að finna á vef Landsvirkjunar.
-
Rætt var um hugmyndir hvort sveitarfélagið gæti ekki sjálft staðið að sumarvinnu unglinga og voru fundarmenn að velta fyrir sér hvernig hægt væri að standa að því. Ákv. að ræða hugmyndir um þetta á næsta fundi.
-
Rætt var um hvort búið væri að sækja um sparkvöll til K.S Í.
-
Nefndin var sammála um að eðlilegt væri að sveitasjórnin ákveði hvaða fjármagn yrði sett til þessara málaflokka æskulýðs, menningar og íþróttamála.
-
Nefndin var sammála um að auglýsa sig til þess að félög menningar íþrótta og æskulýðsstarfsemi geti leitað til okkar um styrk og stuðning.
-
Fleira ekki rætt og fundi slitið kl. 16.30.
Sigþrúður Friðriksdóttir
Þóra Guðrún Þórsdóttir
Grímur Guðmundsson
.
-
Höfundur: Þorleifur Ingvarsson - Uppfært: 05.12.2006
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni